Kjarasamningar halda – ASÍ, SA, SÍS og ríkisstjórnin undirrita yfirlýsingu 

Höfundur

Ritstjórn

Aðildarfélög ASÍ hafa undirritað samkomulag við Samtök atvinnulífsins um viðbrögð við forsendubresti kjarasamninga sem tryggir áframhaldandi gildi samninganna. Til að styðja við markmið kjarasamninganna um lækkun verðbólgu og vaxta hafa Alþýðusamband Íslands, SA, ríkisstjórnin og Samband íslenskra sveitarfélaga gefið út sameiginlega yfirlýsingu um aðhald í verðlagsmálum. 

Samkvæmt henni mun ríkið ekki hækka krónutölugjöld eða gjaldskrár ríkisstofnana sem hafa bein áhrif á vísitölu neysluverðs um meira en 2,5% á árinu 2027, að kílómetragjaldi undanskildu. Fyrirtæki í eigu ríkisins verða jafnframt hvött til að hækka ekki gjaldskrár umfram 2,5%. Þá hvetur Samband íslenskra sveitarfélaga sveitarfélögin til að hækka gjaldskrár sínar ekki umfram 2,5%. Jafnframt hvetja Samtök atvinnulífsins aðildarfyrirtæki sín til að halda aftur af verðhækkunum og mörg þeirra hafa þegar svarað því kalli. Aðilar eru einnig sammála um heildarsöfnun launaupplýsinga frá launagreiðendum og aðgerðir til að draga úr vægi sjálfvirkra verðbreytinga. 

Þá hefur ríkisstjórnin kynnt ýmsar mikilvægar aðgerðir vegna kjarasamninga til að styrkja stöðu launafólks. Meðal þeirra er aukin uppbygging í almenna íbúðakerfinu, réttarbætur fyrir leigjendur og vaxtastuðningur við skuldsett heimili verði verðbólga yfir 3,8% í lok október 2027. Þá verður ráðist í aðgerðir gegn félagslegum undirboðum með viðurlögum við launaþjófnaði og innleiðingu keðjuábyrgðar í stærri verklegum framkvæmdum, auk ákvæða um að umsamin lágmarkskjör falli ekki niður vegna tómlætis. Stjórnvöld lýsa jafnframt yfir vilja til að vinna áfram með aðilum að framtíðarlausn í formi örorkubótasjóðs vinnumarkaðarins og verður framlagi ríkisins til að jafna örorkubyrði lífeyrissjóða viðhaldið þangað til. Í ljósi vaxandi atvinnuleysis munu aðilar vinna í sameiningu, fyrir lok árs, viðbragðsáætlun um aukinn stuðning og virkar vinnumarkaðsaðgerðir til að draga úr langtímaatvinnuleysi. 

Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ segir það mestu máli skipta fyrir launafólk og samfélagið allt að samkomulag hafi náðst við alla hópa innan ASÍ um framlengingu kjarasamninga.  Aðkoma ríkisstjórnar og sveitarfélaga hafi verið mikilvæg og nú þurfi stjórnvöld og fyrirtækin í landinu að standa við gefinn loforð um aðhald í verðlagsmálum og hrinda í framkvæmd þeim félagslegu umbótum sem lofað hefur verði. Áframhaldandi uppbygging í almenna íbúðakerfinu, barnabætur og aðgerðir til að sporna gegn félagslegum undirboðum ss. viðurlög við launaþjófnaði sú allt mikilvæg kjara- og réttindamál fyrir launafólk.  

Yfirlýsing ríkisstjórnar, Alþýðusambands Íslands, Samtaka atvinnulífsins og Sambands íslenskra sveitarfélaga 

8. október 2026 

Í mars 2024 gerðu Samtök atvinnulífsins og aðildarfélög Alþýðusambands Íslands kjarasamning til fjögurra ára fyrir almenna markaðinn sem nefndur var Stöðugleikasamningurinn. Meginmarkmið samningsins var að stuðla að lækkun verðbólgu og vaxta. Í Stöðugleikasamningnum er forsenduákvæði sem veitti aðilum samningsins rétt til að segja honum upp fram til 8. október 2026 eftir að verðbólga í ágúst sl. mældist meiri en forsenduákvæði samningsins leyfa. Verðbólga lækkaði frá gildistöku samningsins 2024 og vel fram á árið 2025 en hefur hækkað á árinu 2026, ekki síst vegna áhrifa stríðsins við Persaflóa. Stýrivextir Seðlabankans hafa hækkað á nýjan leik vegna þessa. 

Hinn 20. maí sl. var tilkynnt um þríhliða samtal ríkisins, Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins um verðlagsþróun í samhengi við kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Aðilar að þríhliða samtalinu auk Sambands íslenskra sveitarfélaga eru sammála um mikilvægi meginmarkmiðs Stöðugleikasamningsins að skapa skilyrði fyrir minni verðbólgu og lækkun vaxta. 

Til þess að ná markmiðum samningsins og tryggja að hann skili árangri munu aðilarnir því leggjast sameiginlega á árarnar út gildistíma hans til þess að ná niður verðbólgu og skapa aðstæður fyrir lækkun vaxta með eftirfarandi aðgerðum: 

  1. Ríkið mun ekki hækka krónutölugjöld sem hafa bein áhrif á vísitölu neysluverðs á árinu 2027 um meira en 2,5%, að kílómetragjaldi undanskildu vegna kerfisbreytingar á gjaldtöku ökutækja. 
  1. Gjaldskrár ríkisstofnana sem bein áhrif hafa á vísitölu neysluverðs munu ekki hækka umfram 2,5% á árinu 2027. Ríkið mun jafnframt beina þeim tilmælum til fyrirtækja í sinni eigu að gæta að verðstöðugleika með því að hækka ekki gjaldskrár opinberrar þjónustu sem hafa bein áhrif á vísitölu neysluverðs umfram 2,5% á árinu 2027. 
  1. Í samræmi við ályktun landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga 25. september sl. hvetur sambandið sveitarfélög til að hækka ekki almennar gjaldskrár sínar um meira en 2,5% á árinu 2027. Sérstaklega verði horft til gjaldskráa sem eru undir beinni stjórn sveitarstjórna. Sveitarfélög munu jafnframt hvetja fyrirtæki í sinni eigu til að leita allra leiða til að hækka ekki gjaldskrár opinberrar þjónustu sem hafa bein áhrif á vísitölu neysluverðs umfram 2,5% á árinu 2027. 
  1. Samtök atvinnulífsins hvetja aðildarfyrirtæki sín að leita allra leiða til að halda aftur af verðhækkunum og gæta í því efni að markmiðum Stöðugleikasamningsins. 
  1. Síðastliðið sumar var að störfum vinnuhópur um styrkingu launatölfræði sem skilaði niðurstöðum sínum til Þjóðhagsráðs 3. september sl. Aðilar að samkomulaginu eru sammála um að ráðast skuli í heildarsöfnun launaupplýsinga frá launagreiðendum. Stjórnvöld munu hefja undirbúning að heildarsöfnun launaupplýsinga á íslenskum vinnumarkaði strax á árinu 2026 og tryggja fjármögnun verkefnisins frá og með 2027. Með þessu mun skapast mun heildstæðari upplýsingagrunnur um íslenskan vinnumarkað en með núverandi fyrirkomulagi. 
  1. Á fundi Þjóðhagsráðs 3. september sl. voru jafnframt kynntir valkostir til að draga úr sjálfvirkum verðbreytingum. Aðilar að samkomulaginu munu ráðast í aðgerðir til að draga úr vægi sjálfvirkra verðbreytinga, m.a. á grundvelli þeirra valkosta sem þar voru kynntir. 

Tengdar fréttir

  • Meðaltalið borgar ekki húsaleiguna

    Laun hafa hækkað og meðaltölin líta ágætlega út. Það er…

    Finnbjörn A. Hermannsson

    15. sep 2026

  • Verðbólga yfir forsendum kjarasamninga

    Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,2% í ágúst frá fyrri mánuði…

    Ritstjórn

    27. ágú 2026

  • Lægri laun hækkuðu hlutfallslega meira á almenna markaðnum

    Ný vorskýrsla Kjaratölfræðinefndar varpar skýrara ljósi á hvernig launaþróun var…

    Ritstjórn

    14. júl 2026