47. þing ASÍ hefst á miðvikudag með opnu málþingi

Höfundur

Ritstjórn

Opin dagskrá við setningu þingsins, miðvikudaginn 14. október kl. 10–13

47. þing Alþýðusambands Íslands fer fram dagana 14.–16. október og í tilefni af því verður haldið málþing, opið öllum, miðvikudaginn 14. október kl. 10–13 í hátíðarsal Hilton Reykjavík. Yfirskrift þingsins að þessu sinni er „Framtíð vinnu og verkalýðsbaráttu“. Þar verður horft fram á veginn og rætt hvernig verkalýðshreyfingin ætlar að mæta þeim áskorunum sem fylgja tækni- og loftslagsbreytingum.

Meðal ræðumanna eru Mariana Mazzucato, prófessor við University College London og einn þekktasti hagfræðingur samtímans, og Luc Triangle, aðalframkvæmdastjóri Alþjóðasambands verkalýðsfélaga (ITUC), sem er málsvari um 200 milljóna launafólks um allan heim. Bæði flytja þau fjarerindi. Rætt verður um hvernig gervigreind mun breyta störfum og réttindum launafólks, hvort hún skapi ný tækifæri eða nýjan ójöfnuð, og hvaða möguleika fólk á Íslandi hefur til að bæta kjör sín milli kynslóða.

Hvenær: Miðvikudaginn 14. október kl. 10:00–13:00. Húsið opnar 09:30
Hvar: Hátíðarsalur Hilton Reykjavík, Suðurlandsbraut 2
Aðgangur: Opið öllum – léttar veitingar í boði


Erindi flytja

Mariana Mazzucato, prófessor við UCL (fjarerindi)
Prófessor í hagfræði nýsköpunar og almannavirðis við University College London og stofnandi Institute for Innovation & Public Purpose. Höfundur bókanna The Entrepreneurial State, Mission Economy og The Common Good Economy (2026) og ráðgjafi stjórnvalda og alþjóðastofnana víða um heim.

Huginn Freyr Þorsteinsson, vísindaheimspekingur
Hvernig lifum við gervigreindina af?
Doktor í vísindaheimspeki frá Bristol-háskóla og einn höfunda skýrslu stjórnvalda um Ísland og fjórðu iðnbyltinguna (2019). Hann er stjórnarformaður Vinnumálastofnunar.

Ragna Kemp Haraldsdóttir, dósent við Háskóla Íslands
Gervigreind og BIAS – ný tækifæri, nýr ójöfnuður?
Dósent í upplýsingastjórnun á Félagsvísindasviði HÍ. Rannsóknir hennar snúa meðal annars að aðgengi, öryggi og miðlun upplýsinga, upplýsingaóreiðu og gervigreind.

Emil Dagsson, hagfræðingur
Tekjuhreyfanleiki milli kynslóða á Íslandi
Hagfræðingur hjá Seðlabanka Íslands og doktorsnemi við Háskóla Íslands, þar sem hann rannsakar hreyfanleika tekna, menntunar og auðs milli kynslóða.

Luc Triangle, aðalframkvæmdastjóri ITUC (fjarerindi)
Hefur frá 2023 leitt Alþjóðasamband verkalýðsfélaga, sem er málsvari um 200 milljóna launafólks í 170 löndum. Áður var hann framkvæmdastjóri industriAll Europe.


Dagskrá

SetningLúðrasveit verkalýðsins leikur.
Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, setur þingið.
Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, ávarpar gesti.
ErindiMariana Mazzucato (fjarerindi)
Huginn Freyr Þorsteinsson
Ragna Kemp Haraldsdóttir
PallborðFramtíð vinnunnar, réttindi og færni á breyttum vinnumarkaði
Huginn Freyr Þorsteinsson, vísindaheimspekingur
Hildur Bettý Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins
Jóhanna Bárðardóttir, aðaltrúnaðarmaður hjá Rio Tinto
Ragna Kemp Haraldsdóttir, dósent við Háskóla Íslands
Kaffihlé
ErindiEmil Dagsson
Luc Triangle (fjarerindi)
PallborðJöfnuður, tækifæri og félagslegur hreyfanleiki
Emil Dagsson, hagfræðingur
Sóllilja Bjarnadóttir, sérfræðingur hjá Vörðu
Hafsteinn Einarsson, dósent við Háskóla Íslands

Guðmundur Steingrímsson stýrir pallborðsumræðum. Dagskrá þingsins í heild má finna á þingvef ASÍ.

Tengdar fréttir

  • Hlaðvarp ASÍ-UNG: Viðtöl við frambjóðendur til forseta ASÍ

    Kaffitíminn, sem er hlaðvarp ASÍ-UNG, hefur sett í loftið þáttaröð…

    Ritstjórn

    8. okt 2026

  • 47. þing ASÍ – málþing opið öllum þann 14. október

    Þing Alþýðusambands Íslands fer fram dagana 14.–16. október og í…

    Ritstjórn

    7. okt 2026

  • ASÍ á ferð um landið

    Í dag 31. ágúst hefst hringferð forseta ASÍ þar sem…

    Ritstjórn

    31. ágú 2026