Atvinnuleysi eykst milli ára

Höfundur

Ritstjórn

Nýjar tölur vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofu Íslands sýna talsverða aukningu atvinnuleysis í júlí. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi mældist 6,3% og hækkar úr 5,1% í júní. Á sama tíma í fyrra mældist það 4%.

Þetta er önnur þróun en birtist í tölum Vinnumálastofnunar. Skráð atvinnuleysi Vinnumálastofnunar var 4,0% í júlí og óbreytt frá júní. Það er þó einnig töluvert meira en fyrir ári, þegar það mældist 3,4%. Að meðaltali voru 8.423 einstaklingar á atvinnuleysisskrá í júlí, tæplega þúsund fleiri en í mánuðinum árinu áður.

Mælingarnar segja ólíka sögu um þróun atvinnuleysis milli mánaða en þegar horft er til sama tíma í fyrra er myndin hins vegar skýrari, atvinnuleysi hefur aukist samkvæmt báðum mælingum.

Mælingar Hagstofunnar og Vinnumálastofnunar byggja á ólíkum gögnum. Vinnumálastofnun birtir upplýsingar um skráð atvinnuleysi en Hagstofan út frá vinnumarkaðsrannsókn þar sem staða fólks á vinnumarkaði er metin með úrtakskönnun. Þar geta meðal annars talist atvinnulausir einstaklingar í atvinnuleit sem eru ekki á skrá hjá Vinnumálastofnun. Mælingarnar geta því sýnt ólíkt atvinnuleysisstig og ólíka þróun.

Langtímaatvinnuleysi enn mikið

Langtímaatvinnuleysi hefur verið sérstakt áhyggjuefni undanfarna mánuði. Í janúar höfðu 1.772 einstaklingar verið án atvinnu í meira en ár, 352 fleiri en í janúar árið áður. Júlítölur Vinnumálastofnunar sýna hins vegar ekki áframhaldandi aukningu. Alls höfðu 1.565 einstaklingar verið án atvinnu lengur en í 12 mánuði, samanborið við 1.548 í júlí í fyrra. Þá höfðu 1.942 verið atvinnulausir í sex til tólf mánuði, en 2.025 ári áður.

Samanlagt höfðu því um 3.500 manns, eða rúm 40% þeirra sem voru á atvinnuleysisskrá í lok júlí, verið án atvinnu í sex mánuði eða lengur. Hlutfallið var tæp 46% á sama tíma í fyrra. Það er jákvæð þróun frá því fyrr á árinu, en engu að síður er um stóran hóp að ræða sem hefur verið frá vinnumarkaði um lengri tíma.

Hlutfall erlendra ríkisborgara lækkar

Í janúar voru 5.910 erlendir ríkisborgarar á atvinnuleysisskrá Vinnumálastofnunar eða 58% allra skráðra atvinnuleitenda. Í lok júlí voru erlendir atvinnuleitendur 4.600 og hlutfall þeirra komið niður í 53%. Í júlí í fyrra var hlutfallið 55%.

Vinnumálastofnun áætlar að atvinnuleysi erlendra ríkisborgara hafi verið 7,9% í júlí, samanborið við 2,5% meðal íslenskra ríkisborgara. Fyrir ári voru sambærileg hlutföll 7,4% og 2,0%. Fjöldi erlendra ríkisborgara á atvinnuleysisskrá er 4.600 samanborið við 4.300 í júlí í fyrra.

Þótt hlutfall erlendra ríkisborgara á atvinnuleysisskrá hafi lækkað frá upphafi árs er atvinnuleysi því enn meira meðal þeirra en fyrir ári. Atvinnuleysi meðal íslenskra ríkisborgara hefur einnig aukist og fjölgun atvinnulausra milli ára einskorðast því ekki við erlenda ríkisborgara. Þróunin bendir til þess að aukið atvinnuleysi nái til breiðari hóps á vinnumarkaði.

Staða ungs fólks

Um fjórðungur þeirra sem voru á atvinnuleysisskrá Vinnumálastofnunar í lok júlí var á aldrinum 18–29 ára, alls 2.165 einstaklingar. Hlutfallið er nánast það sama og í júlí í fyrra, þegar 1.942 ungmenni voru á skrá.

Mánaðartölur vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar fyrir yngsta aldurshópinn, 16–24 ára, hafa hins vegar sveiflast talsvert. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi í hópnum mældist um 12% í júní en 6,4% í júlí. Því er erfitt að draga sterkar ályktanir af breytingum milli einstakra mánaða.

Ástæða er þó áfram til að fylgjast sérstaklega með stöðu ungs fólks. Á fyrsta ársfjórðungi ársins mældist atvinnuleysi meðal 16–24 ára 18,0%, samanborið við 12,2% á sama tímabili í fyrra.

Veikari staða en fyrir ári

Skráð atvinnuleysi hefur lækkað frá því sem það var yfir vetrarmánuðina, en þá þróun þarf að skoða í ljósi fyrirsjáanlegra árstíðarsveiflna á vinnumarkaði. Þegar horft er til sama tíma í fyrra er meginmyndin skýr: atvinnuleysi hefur aukist frá sama tíma í fyrra samkvæmt bæði Vinnumálastofnun og Hagstofunni.

Sú þróun kallar á áframhaldandi athygli á stöðu þeirra hópa sem eiga á hættu að festast utan vinnumarkaðar og á öflugar vinnumarkaðsaðgerðir, ekki síst í ljósi þess að atvinnuleysistryggingakerfið hefur nýlega verið veikt.

Tengdar fréttir

  • Lægri laun hækkuðu hlutfallslega meira á almenna markaðnum

    Ný vorskýrsla Kjaratölfræðinefndar varpar skýrara ljósi á hvernig launaþróun var…

    Ritstjórn

    14. júl 2026

  • Vorskýrsla Kjaratölfræðinefndar 2026 kynnt

    Ný vorskýrsla Kjaratölfræðinefndar, þar sem fjallað er þróun efnahagsmála og…

    Ritstjórn

    30. jún 2026

  • Veiking atvinnuleysistrygginga í vaxandi atvinnuleysi

    Atvinnuleysi hefur farið vaxandi síðastliðið ár. Samkvæm árstíðarleiðréttum tölum Hagstofu…

    Ritstjórn

    29. jún 2026