Vaxtahækkunin röng ákvörðun á versta tíma

Höfundur

Ritstjórn

Vaxtahækkun við núverandi aðstæður er röng, illa tímasett og leggur enn eina ferðina auknar byrðar á skuldsett heimili sem hafa þegar greitt hátt verð fyrir baráttuna gegn verðbólgunni.

Þetta er mat Finnbjörns A. Hermannssonar, forseta Alþýðusambands Íslands, á þeirri ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands í morgun að hækka stýrivexti um 0,25 prósentustig, úr 7,75% í 8%.

Finnbjörn bendir á að skýr merki þess séu að  hagkerfið sé að kólna, atvinnuleysi að aukast og heimilin hafi þegar búið við gríðarlega vaxtabyrði árum saman. Eftir nokkra daga liggi verðbólgumæling ágústmánaðar fyrir og allt bendi til þess að forsendur kjarasamninganna frá 2024 bresti.

Samhliða yfirlýsingu peningastefnunefndar er uppfærð efnahagsspá bankans birt. Spáð er minni hagvexti á þessu ári en í síðustu útgáfu peningamála en þar munar um minni vöxt einkaneyslu en nú spáir bankinn einungis 1,2% vexti útgjalda heimilanna. Á móti er gert ráð fyrir meiri fjárfestingu á ár sem skýrist fyrst og fremst að aukinni fjárfestingu í gagnaverum.

Spáð er meiri verðbólgu en í síðustu útgáfu og gert ráð fyrir að verðbólga verði 5,7% á fjórða ársfjórðungi. Að mati bankans eru þó forsendur fyrir hjöðnun á næsta ári og að verðbólga verði 3% í árslok 2027.

Minni umsvif í hagkerfinu koma fram í dekkri horfum á vinnumarkaði en bankinn spáir nú tæplega 6% atvinnuleysi að jafnaði á þessu ári og um 5,2% á árinu 2027.

Forsetinn bendir á að rökstuðningur Seðlabankans sjálfs veki athygli. Talsmenn bankans segi að aukin verðbólga hafi að undanförnu fyrst og fremst komið til sökum hækkunar opinberra gjalda og áhrifa stríðsátaka í Mið-Austurlöndum. Jafnframt segi bankinn að undirliggjandi verðbólga hafi haldist stöðug og sé tekin að hjaðna á suma mælikvarða samhliða vaxandi slaka í þjóðarbúinu.

„Hærri stýrivextir lækka ekki opinber gjöld. Þeir stöðva ekki stríð. Þeir lækka ekki heimsmarkaðsverð á olíu,“ segir Finnbjörn.

Þeir geri hins vegar húsnæðislán dýrari, þrengi að ráðstöfunartekjum heimilanna, dragi úr framkvæmdum og geri húsnæðisuppbyggingu enn erfiðari.

„Seðlabankinn bregst þannig við verðbólgu sem hann ræður að stórum hluta ekki við með því að þrengja enn á ný hag fólksins sem þegar hefur tekið á sig þyngstu byrðarnar. Það er ekki trúverðug hagstjórn.“

Stöðugleikasamningar í uppnámi

Finnbjörn minnir á að stöðugleikasamningarnir 2024 hafi verið gerðir á skýrum forsendum. Launafólk hafi samþykkt hóflegar launahækkanir til fjögurra ára til að skapa svigrúm fyrir lægri verðbólgu og lægri vexti. Það hafi verið stór ákvörðun af hálfu verkalýðshreyfingarinnar.

„Gleymum því ekki að fólk sem þegar bjó við mikla dýrtíð og háan húsnæðiskostnað samþykkti að stilla kröfum sínum í hóf vegna þess að markmiðið var sameiginlegt: að ná niður verðbólgu og vöxtum og verja kaupmátt heimilanna til lengri tíma. Launafólk stóð við sitt.“

Það hafi aðrir hins vegar ekki gert. Opinber gjöld hafi hækkað, verðhækkanir fyrirtækja hafi haldið áfram þrátt fyrir áköll um annað og húsnæðismarkaðurinn sé enn í algjörum ólestri.

Vond skilaboð

Finnbjörn bendir á að vaxtahækkunin komi á sama tíma og Alþýðusambandið, stjórnvöld og atvinnurekendur standi frammi fyrir því verkefni að móta viðbrögð við líklegum forsendubresti samninganna.

„Seðlabankinn sendir vond skilaboð inn í stöðuna. Launafólk var beðið um að treysta því að hófsemi í launakröfum myndi skapa grundvöll fyrir lægri vexti og meiri stöðugleika. Nú, rúmum tveimur árum síðar, standa stýrivextir í 8%. Verkalýðshreyfingin getur ekki horft framhjá þeirri staðreynd,“ segir hann og bætir við:

„Það verður ekki samþykkt að svarið við brostnum forsendum sé enn meiri fórn af hálfu sama fólks. Launafólk á Íslandi á ekki að borga enn einu sinni fyrir mistök sem það ber ekki ábyrgð á.“

Tengdar fréttir

  • HÝR VINNUMARKAÐUR

    Samtal í boði ASÍ, BHM, BSRB og KÍ föstudaginn 7.…

    Ritstjórn

    5. ágú 2026

  • 5,2% verðbólga í apríl

    Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,81% milli mars og apríl. Verðlag…

    Ritstjórn

    1. maí 2026

  • Varða kynnir niðurstöður um stöðu starfsfólks í leik- og grunnskólum

    Varða – Rannsóknastofnun vinnumarkaðarins kynnir á fimmtudag nýja skýrslu um stöðu…

    Ritstjórn

    30. apr 2026