Ný lög breyta hlutverki stéttarfélaga við útgáfu atvinnuleyfa 

Höfundur

Ritstjórn

Í lok árs 2025 var lagt fram frumvarp til breytinga á lögum um atvinnuréttindi útlendinga. Meðal breytinga var lagt til að breyta umsóknarferli atvinnuleyfa og afnema þá meginreglu að stéttarfélög veittu umsögn um umsóknir um atvinnuleyfi.  

Alþýðusamband Íslands gagnrýndi breytingarnar í umsögn sinni til Alþingis og lagðist gegn því að afnumin yrði skylda til að senda umsóknir um atvinnuleyfi til umsagnar hjá stéttarfélögum. Sambandið benti á að umsagnarrétturinn hefði verið mikilvægt tæki til að stuðla að því að launakjör og önnur starfskjör erlends launafólks væru í samræmi við lög og kjarasamninga. Með aðkomu stéttarfélaga hefði verið unnt að greina frávik og bregðast við þeim áður en atvinnuleyfi voru veitt.

Í umsögninni lagði ASÍ jafnframt áherslu á að ef umsagnarskyldan yrði afnumin yrði stjórnvöldum gert skylt að veita nægjanlegar upplýsingar um veitt atvinnuleyfi svo stéttarfélög geti áfram sinnt virku eftirliti með kjörum og réttindum erlends launafólks. Það skiptir ekki síst máli þar sem fólk sem starfar hér á grundvelli atvinnuleyfis getur verið í viðkvæmri stöðu á vinnumarkaði.

Skýr upplýsingaskylda stjórnvalda

Alþingi kom að hluta til móts við athugasemdir ASÍ og samþykkti breytingartillögu sem kveður á um skýra skyldu stjórnvalda til að veita upplýsingar til viðkomandi stéttarfélags um veitt atvinnuleyfi sem eru nauðsynleg í tengslum við eftirlit samkvæmt lögum um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum. Í upphaflegu frumvarpi var einungis gert ráð fyrir heimild stjórnvalda til að veita slíkar upplýsingar. Hins vegar var skylda til að leita umsagnar stéttarfélaga afnumin. Stjórnvöld hafa þó áfram heimild til að óska eftir umsögn telji þau ástæðu til.

Alþýðusamband Íslands mun fylgjast náið með framkvæmd laganna og leggja áherslu á að upplýsingaskyldu stjórnvalda verði framfylgt í reynd þannig að stéttarfélög geti áfram sinnt öflugu eftirliti með kjörum og réttindum launafólks.

Tengdar fréttir

  • Landsréttur: Atvinnurekendur bera sönnunarbyrði vegna ófullnægjandi tímaskráningar

    Hafi atvinnurekendur ekki fullnægjandi tímaskráningarkerfi fellur sönnunarbyrðin á þá  þegar…

    Magnús Norðdahl

    25. jún 2026

  • Eru verka­lýðs­fé­lög úr­elt eða bara ó­þægi­leg sumum?

    Höfundur: Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir, varaformaður ASÍ-UNG Nýleg ummæli Björns…

    Ritstjórn

    4. maí 2026

  • Bág fjárhagsstaða hjá starfsfólki í leikskólum

    Varða – Rannsóknastofnun vinnumarkaðarins kynnir nýja skýrslu um fjárhagsstöðu, stöðu…

    Ritstjórn

    30. apr 2026