Lítillega dregur úr atvinnuleysi milli mánaða

Höfundur

Ritstjórn

Það dregur úr skráðu atvinnuleysi á milli mánaða en að meðaltali voru 6.767 á atvinnuleysisskrá í maí. Skráð atvinnuleysi mældist 3,6% í lok mánaðarins sem er 0,1 prósentustigi minna en í apríl. Að apríl frátöldum er skráð atvinnuleysi nú það mesta síðan í mars 2015. Í árstíðarsveiflu atvinnuleysis eru sumarmánuðirnir maí, júní, júlí, yfirleitt með lágt atvinnuleysisstig samanborið við árið allt. Borið saman við maímánuði síðustu ár er atvinnuleysi nú það mesta síðan 2014 en þá var atvinnuleysi það sama eða 3,6%.



Þó dragi úr atvinnuleysi milli mánaða fjölgar þeim sem hafa verið atvinnulausir lengur en hálft ár. Í maí höfðu 2.793 einstaklingar verið atvinnulausir lengur en 6 mánuði. Er það mesti fjöldi í þeim hópi frá september 2014.

Í öllum landshlutum dregur úr atvinnuleysi að Suðurnesjum frátöldum. Atvinnuleysi þar er talsvert meira en annars staðar og eykst munurinn milli mánaða.

Tengdar fréttir

  • Enginn norrænn viðbúnaður án launafólks

    Helsinki, 23. september 2026 Fimmta þing Norræna verkalýðssambandsins (NFS), sem…

    Ritstjórn

  • Verðbólga yfir forsendum kjarasamninga

    Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,2% í ágúst frá fyrri mánuði…

    Ritstjórn

  • Gjaldskrárhækkun á máltíðum eldri borgara sendir út alröng skilaboð

    Reykjavíkurborg hefur ákveðið að hækka verð á hádegismat fyrir eldri…

    Ritstjórn