Samkomulag um endurskoðun viðræðuáætlunar undirritað

Höfundur

Ritstjórn

Samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga og samninganefndir Starfsgreinasambands Íslands og Eflingar – stéttarfélags hafa undirritað samkomulag um endurskoðun viðræðuáætlunar aðila þar sem stefnt er að gerð nýs kjarasamnings fyrir 20. október næstkomandi. Jafnframt drógu SGS og Efling – stéttarfélag til baka vísun kjaradeilu aðila til ríkissáttasemjara.

Þann 1. október 2019 verður hverjum starfsmanni greidd innágreiðsla á væntanlegan kjarasamning að upphæð 125.000 kr. miðað við fullt starf. Upphæðin greiðist hlutfallslega miðað við starfstíma og starfshlutfall á tímabilinu frá og með 1. apríl 2019 til og með 30. september 2019. Starfsmenn í fæðingarorlofi og tímavinnufólk fær innágreiðsluna.

Það er sameiginlegur skilningur aðila að ofangreind fjárhæð sé hluti fyrirhugaðra launabreytinga á gildistíma hinna endurnýjuðu kjarasamninga aðila og verði metinn sem hluti af kostnaðaráhrifum þeirra.

Tengdar fréttir

  • Enginn norrænn viðbúnaður án launafólks

    Helsinki, 23. september 2026 Fimmta þing Norræna verkalýðssambandsins (NFS), sem…

    Ritstjórn

  • Verðbólga yfir forsendum kjarasamninga

    Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,2% í ágúst frá fyrri mánuði…

    Ritstjórn

  • Gjaldskrárhækkun á máltíðum eldri borgara sendir út alröng skilaboð

    Reykjavíkurborg hefur ákveðið að hækka verð á hádegismat fyrir eldri…

    Ritstjórn