Það var frekar myrk yfirskriftin á málþingi umhverfisnefndar ASÍ í gær: „Engin störf á dauðri jörð“, en tilefni er ærið. Við höfum áratug til að vinda ofan af neyslunni, útblæstrinum og hinum vestræna lífstíl áður en stefnir í óefni. Við þurfum að hafa hraðar hendur. Verkalýðshreyfingin í heiminum verður að leika þar lykilhlutverk. Þær stóru ákvarðanir sem teknar verða mega ekki verða til þess að auka misskiptingu á milli fólks, landsvæða og heimshluta heldur þvert á móti að búa til betri störf og aukin lífsgæði fyrir fjöldann. Sanngjörn umskipti eru hér lykilorð. Vandinn sem við erum í, að þurfa tæpar tvær jarðir til að standa undir núverandi neyslu, setur kastljósið á misskiptingu gæðanna, græðgisvæðingu og kerfi sem elur af sér að mikill vill sífellt meira.
Sem betur fer erum við ekki lengur í skotgröfum þeirra sem vilja vernda umhverfið og þeirra sem vilja stóriðju; flestir gera sér grein fyrir að umhverfissjónarmið verða að ráða í ákvörðunum næstu ára og áratuga, í atvinnuuppbyggingu sem öðru. Annað gæti orðið okkur afar dýrkeypt, svo ekki sé talað um þá alþjóðasáttmála sem við höfum undirritað og undirgengist.
Málþingið í gær var upphafið að opinni umræðu ASÍ um umhverfismál og er bara fyrsta skrefið í þeirri vegferð sem verkalýðshreyfingin er í. Bæði hér á lanfi og á alþjóðavettvangi. Heimurinn er að breytast og við erum tilbúin til að verja hagsmuni launafólks á þeirri vegferð.
Góða helgi,
Drífa

Drífa Snædal – Við þurfum að breyta viðhorfum okkar til neyslu
Tengdar fréttir
5,2% verðbólga í apríl
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,81% milli mars og apríl. Verðlag…
Ný skýrsla Vörðu um réttlát umskipti í samgöngum
Réttlát umskipti er hugtak notað til að lýsa hvernig umbreytingar…
Opið fyrir umsóknir í Minningarsjóð Eðvarðs Sigurðssonar 2026
Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar auglýsir eftir umsóknum. Sjóðurinn veitir styrki til…




