Nú þegar fjárhagsáætlanagerð stendur yfir hjá sveitarfélögunum minnir Alþýðusamband Íslands á yfirlýsingu Sambands íslenskra sveitarfélaga sem gefin var út í tengslum við kjarasamninga síðastliðið vor þar sem mælst var til þess að sveitarfélögin tækju þátt í að stuðla að verðstöðugleika með því að halda aftur af hækkunum á gjaldskrám.
Í yfirlýsingunni beindi Samband íslenskra sveitarfélaga þeim tilmælum til sveitarfélaganna að gjöld á þeirra vegum hækki ekki umfram 2,5% á árinu 2020, og minna ef verðbólga væri lægri, en yfirlýsingin vó þungt í heildarniðurstöðu kjarasamninga.
Sveitarstjórnir ákvarða gjöld fyrir ýmsa þjónustu sveitarfélaganna en þar má m.a. nefna leikskólagjöld, gjöld fyrir frístundaheimili, skólamáltíðir, sundlaugar auk fasteignagjalda en ljóst er að hækkanir á opinberum gjöldum sem þessum minnka ávinning launafólks af kjarasamningum.
Nauðsynlegt að lækka álagningarhlutfall eigi hækkanir á fasteignagjöldum að vera innan við 2,5%
Fasteignagjöld eru í flestum tilfellum reiknuð sem hlutfall af fasteignamati og munu hækkanir á fasteignamati því leiða til hækkana á fasteignagjöldum ef engar breytingar verða gerðar á álagningarhlutfalli sveitarfélaganna.
Breytingar á fasteignamati fyrir næsta ár hafa legið fyrir síðan í sumar og því ljóst hvernig fasteignaskattar munu hækka í hverju sveitarfélagi ef álagningarhlutfallið helst óbreytt. Ef breyting á fasteignamati í 22 hverfum í 16 stærstu sveitarfélögunum er skoðuð, má sjá að í öllum tilfellum nema einu hækkar fasteignamatið milli ára. Þannig lækkar fasteignamatið einungis í miðbæ Reykjavíkur, um 2% í fjölbýli og 1,1% í sérbýli en töluverðar hækkanir má sjá á fasteignamati í öðrum hverfum eins og sjá má á meðfylgjandi töflu.
Opinberum aðilum ber að sýna ábyrgð og taka þátt í því að viðhalda verðstöðugleika svo að markmið kjarasamninga um aukinn kaupmátt, lága verðbólgu og lægri vexti nái fram að ganga. Alþýðusambandið ætlast til þess að sveitastjórnir landsins axli þessa ábyrgð í yfirstandandi fjárhagsáætlanagerð og standi við gefnar yfirlýsingar gagnvart launafólki.
ASÍ mun veita sveitarfélögum aðhald og fylgjast náið með gjaldskrárbreytingum á næstu vikum.
Smelltu á myndina til að stækka hana.

Sveitarfélög standi við yfirlýsingar og treysti markmið kjarasamninga
Tengdar fréttir
Enginn norrænn viðbúnaður án launafólks
Helsinki, 23. september 2026 Fimmta þing Norræna verkalýðssambandsins (NFS), sem…
Verðbólga yfir forsendum kjarasamninga
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,2% í ágúst frá fyrri mánuði…
Gjaldskrárhækkun á máltíðum eldri borgara sendir út alröng skilaboð
Reykjavíkurborg hefur ákveðið að hækka verð á hádegismat fyrir eldri…





