Yfirlýsing vegna viðræðuslita Icelandair og FFÍ

Höfundur

Ritstjórn

Stjórn og trúnaðarráð Flugfreyjufélags Íslands (FFÍ) fordæmir óvænt og einhliða viðræðuslit Icelandair sem birt voru í fjölmiðlum í dag. Afstaða Icelandair setur FFÍ í þá afleitu stöðu að þurfa að hefja undirbúning að tafarlausum og víðtækum verkfallsaðgerðum. FFÍ er aðili að Alþýðusambandi Íslands og alþjóðlegum verkalýðssamtökum og hefur fullan stuðning við aðgerðir sínar þar. Samstöðuaflinu verður beitt af fullum þunga.

„Það eru gríðarleg vonbrigði að Icelandair kalli eftir því að flugmenn gangi í störf félagsmanna FFÍ og ég neita að trúa því fyrr en ég tek á því að vinnufélagar okkar muni koma þannig fram við samstarfsfélaga sína um árabil. Afstaða og viðhorf Icelandair í málinu eru til skammar og ég hef trú á að almenningur tekur slíkri lítilsvirðingu við launfólk ekki þegjandi og hljóðalaust,“ segir Guðlaug Líney Jóhannsdóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands.

Icelandair hefur á undanförnum mánuðum þegið háar fjárhæðir úr opinberum sjóðum og FFÍ væntir þess að málið verði tekið fyrir á vettvangi stjórnvalda hið fyrsta og geri þá kröfu til stjórnenda fyrirtækisins að þeir virði lög og leikreglur á íslenskum vinnumarkaði.

Kópavogi 17.07.2020

Tengdar fréttir

  • Gjaldskrárhækkun á máltíðum eldri borgara sendir út alröng skilaboð

    Reykjavíkurborg hefur ákveðið að hækka verð á hádegismat fyrir eldri…

    Ritstjórn

    20. ágú 2026

  • Vaxtahækkunin röng ákvörðun á versta tíma

    Vaxtahækkun við núverandi aðstæður er röng, illa tímasett og leggur…

    Ritstjórn

    19. ágú 2026

  • HÝR VINNUMARKAÐUR

    Samtal í boði ASÍ, BHM, BSRB og KÍ föstudaginn 7.…

    Ritstjórn

    5. ágú 2026