Miðstjórn ASÍ lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðunni á húsnæðismarkaði sem er rót óstöðugleika í íslensku efnahagslífi. Seðlabankinn tilkynnti í morgun að stýrivextir verði hækkaðir um 0,25 prósent. Meginvextir bankans eru nú 1,5%. Verðbólga mælist 4,4% um þessar mundir en sé horft framhjá áhrifum húsnæðisliðar liggur verðbólga nú nærri markmiði Seðlabankans. Vísbendingar eru einnig um að leiguverð fari hækkandi á ný.
Vaxtahækkanir munu hafa veruleg áhrif á fjárhag heimilanna og atvinnulífs á næstu misserum. Mánaðarleg greiðslubyrði lána getur hækkað um tugi þúsunda króna hjá fjölda fólks. Jafnframt hefur hátt húsnæðisverð gert það að verkum að stór hópur situr fastur á óstöðugum, hagnaðardrifnum leigumarkaði.
Nýrrar ríkisstjórnar bíða miklar áskoranir í húsnæðismálum. Þar kallar miðstjórn ASÍ eftir skýrum aðgerðum sem tryggja stöðugleika á húsnæðismarkaði og koma í veg fyrir að fólk lendi í fjárhagserfiðleikum vegna óstöðugleika sem á rætur að rekja til efnahags- og peningamálastjórnunar. Koma þarf í veg fyrir skort á íbúðarhúsnæði og tryggja stöðugt framboð nýbygginga. Jafnframt þarf að standa við gefin loforð um að stórauka framlög til almenna íbúðakerfisins og fyrirbyggja þannig frekari óstöðugleika á leigumarkaði. Setja þarf reglur um skammtímaútleigu húsnæðis til ferðamanna til að draga úr ásælni fjárfesta í almennt íbúðarhúsnæði auk þess að innleiða lög um aukna vernd leigjenda.
Miðstjórn ASÍ áréttar að húsnæðismál eru jafnframt eitt stærsta kjaramálið. Á stjórnvöldum hvílir sú ábyrgð að koma á stöðugleika á húsnæðismarkaði og tryggja að allir íbúar landsins hafi þak yfir höfuð á viðráðanlegum kjörum.

Ályktun miðstjórnar ASÍ um húsnæðismál
Tengdar fréttir
Enginn norrænn viðbúnaður án launafólks
Helsinki, 23. september 2026 Fimmta þing Norræna verkalýðssambandsins (NFS), sem…
Verðbólga yfir forsendum kjarasamninga
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,2% í ágúst frá fyrri mánuði…
Gjaldskrárhækkun á máltíðum eldri borgara sendir út alröng skilaboð
Reykjavíkurborg hefur ákveðið að hækka verð á hádegismat fyrir eldri…




