Þing Alþýðusambands Íslands fer fram dagana 14.–16. október og í tilefni af því verður haldið málþing opið öllum þann 14. október kl. 10–13 í hátíðarsal Hilton Reykjavík. Yfirskrift þingsins að þessu sinni er „Framtíð vinnu og verkalýðsbaráttu“. Þar verður horft fram á veginn og rætt hvernig verkalýðshreyfingin ætlar að mæta þeim áskorunum sem fylgja tækni- og loftslagsbreytingum.
OPIN DAGSKRÁ 47. ÞINGS ASÍ
Miðvikudagur 14. október, kl. 10:00–13:00
Hátíðarsalur Hilton Reykjavík
Léttar veitingar verða í boði.
Setning þingsins
Lúðrasveit verkalýðsins leikur við setningu. Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, flytur ávarp og setur þingið. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, ávarpar gesti.
Ávörp og erindi
- Mariana Mazzucato, prófessor við University College London.
- Huginn Freyr Þorsteinsson, vísindaheimspekingur
- Ragna Kemp Haraldsdóttir, dósent á félagsvísindasviði.
Pallborðsumræður – Guðmundur Steingrímsson stýrir
Framtíð vinnunnar, réttindi og færni á breyttum vinnumarkaði
Huginn Freyr Þorsteinsson, vísindaheimspekingur
Hildur Bettý Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins
Jóhanna Bárðardóttir, aðaltrúnaðarmaður hjá Rio Tinto
Ragna Kemp Haraldsdóttir, dósent við Háskóla Íslands
Kaffihlé
Ávörp og erindi
- Emil Dagsson, hagfræðingur
- Luc Triangle, aðalframkvæmdastjóri Alþjóðasambands verkalýðsfélaga (ITUC) — fjarerindi.
Pallborðsumræður – Guðmundur Steingrímsson stýrir
Jöfnuður, tækifæri og félagslegur hreyfanleiki
Emil Dagsson, hagfræðingur
Sóllilja Bjarnadóttir, sérfræðingur hjá Vörðu
Hafsteinn Einarsson, dósent í Háskóla Íslands
Skráning fer fram í hlekk hér fyrir neðan. Við hlökkum til að sjá ykkur.





