Verðbólgan hjaðnar

Höfundur

Ritstjórn

Vísitala neysluverðs mælist 0,15% lægri nú í ágúst en mánuðinn á undan. Vöruflokkurinn Ferðir og flutningar hefur mest áhrif til lækkunar (-0,39%). Innan þess flokks munar mest um Flutningar í lofti (-0,36%) en þar á eftir kemur Bensín og olíur (-0,03%). Verðlagseftirlit ASÍ hefur í nýlegum úttektum1 bent á aukið svigrúm til frekari lækkana í þeim efnum. 

Sem fyrr reynist Húsnæði, hiti og rafmagn enn helsta driffjöður verðhækkana (+0,12%) en áhrif Matar og drykkjarvara eru óveruleg (+0,01%), sem kemur heim og saman við fyrri athugun Verðlagseftirlits ASÍ.  

 

Minni spennu gætir á húsnæðismarkaði 

Frá ársbyrjun hefur vísitala neysluverðs hækkað um rúm 3,45%, en 3,19% án húsnæðisliðarins. Það er minni munur en oft áður og ber þessi merki að dregið hafi úr spennu á húsnæðismarkaði.  

 

Tengdar fréttir

  • Kostnaður við íþróttir getur hlaupið á hundruðum þúsunda – Frístundastyrkir

    Æfingagjöld geta numið yfir hálfri milljón á ári fyrir tvö…

    Ritstjórn

    28. sep 2026

  • Hægt á verðhækkunum á matvöru

    Dagvöruvísitala ASÍ lækkaði um 0,11% milli ágúst og september 2026.…

    Ritstjórn

    24. sep 2026

  • Mikill munur á kostnaði við knattspyrnuiðkun barna

    Æfingagjöld vegna knattspyrnuiðkunar barna eru mjög mismunandi eftir íþróttafélögum. Samanburður…

    Ritstjórn

    15. sep 2026