12. þing ASÍ-UNG var haldið á Hotel Reykjavík Askja 5. og 6. nóvember síðastliðna. Á þinginu fór fram öflugt málefnastarf þar sem sjónum var sérstaklega beint að þeim áskorunum sem ungt fólk stendur frammi fyrir í dag, meðal annars á húsnæðismarkaði, á vinnumarkaði og í samspili stuðningskerfa samfélagsins. Afrakstur þeirrar vinnu var ályktun um jöfn framtíðartækifæri ungs fólks sem þingið samþykkti. Ályktunina má lesa í heild hér.
Þingið kaus einnig nýja stjórn ASÍ-UNG. Stjórnin hefur skipt með sér verkum og tekur Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir, Einingu-Iðju, við formennsku. Andri Már Ólafsson, FMA, verður varaformaður.
Alls voru tíu kjörnir í stjórn, sjö aðalmenn og þrír varamenn. Þrír stjórnarmenn náðu endurkjöri: Andri Már Ólafsson, FMA, Katrín K. Briem Gísladóttir, FVSA, og Valdimar Friðjón Jónsson, Einingu-Iðju. Nýir aðalmenn eru Arndís Inga Sveinsdóttir, Stéttarfélagi Vesturlands, Jóhann Vest, AFLi, Sóley Sandra Gunnlaugardóttir, FMA, og Thelma Björk Sævarsdóttir, FVSA. Nýir varamenn eru Einar Bjarki Stefánsson, Byggiðn, Elfur Gígja Hreggviðsdóttir, AFLi, og Karen Ýr Friðjónsdóttir, VR. Áfram sitja í stjórn þær Elín Ósk Sigurðardóttir, Stéttarfélagi Vesturlands, og Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir, Einingu-Iðju, sem voru ekki í kjöri að þessu sinni.
Á þinginu kvaddi Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir ASÍ-UNG eftir fjögurra ára stjórnarsetu, þar af eitt og hálft ár sem formaður. Svanfríður hefur verið öflug rödd ungs launafólks innan verkalýðshreyfingarinnar og lagt sitt af mörkum til að koma málefnum ungs fólks á framfæri, bæði innan hreyfingarinnar og út á við. ASÍ-UNG og Alþýðusamband Íslands þakka Svanfríði kærlega fyrir hennar framlag og óska henni velfarnaðar.
Þá voru kvödd og þökkuð góð störf þau Andrea Rut Pálsdóttir, Ásdís Helga Jóhannsdóttir, Guðmunda Steina Jósefsdóttir og Þorvarður Bergmann Kjartansson.
















