Ný ríkisstjórn fordæmi glæpaverk Ísraela

Höfundur

Ritstjórn

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands hefur samþykkt eftirfarandi ályktun:

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) hvetur ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur til að fordæma, á hverjum þeim vettvangi sem við verður komið, framferði Ísraela gagnvart Palestínumönnum. Mikilvægt er að hin nýja ríkisstjórn Íslands sýni í verki þá andstyggð og óhugnað sem skipulagt þjóðarmorð á Palestínumönnum á Gaza-svæðinu vekur.

Miðstjórn hefur ítrekað ályktað um málefni Palestínu á undan liðnum misserum enda getur siðað fólk ekki með nokkru móti réttlætt þá algjöru fyrirlitningu á alþjóðalögum sem mótar framgöngu ísraelskra stjórnvalda og lýsir sér í óhæfuverkum gagnvart óbreyttum borgurum, gjöreyðingu innviða og skipulögðum „þjóðernishreinsunum“.

Markmið þeirrar aðskilnaðarstefnu (e. apartheid) sem ísraelsk stjórnvöld fylgja er að eyða byggðum Palestínumanna á hinum svonefndu hernumdu svæðum og hrekja þá íbúa sem ekki tekst að myrða í flóttamannabúðir utan landamæra Ísraels.

Miðstjórn vekur athygli á að Ísraelar hafa á ný hafið landvinninga í kjölfar falls einræðisstjórnar Bashar al-Assads í Sýrlandi. Ísraelar hafa þegar innlimað Gólan-hæðir þvert á alþjóðalög og samþykktir Sameinuðu þjóðanna og hernumið stóran hluta Sýrlands sunnan höfuðborgarinnar, Damaskus. Á Vesturbakkanum sem Ísraelar hyggjast innlima líkt og Gaza eru hafnar þjóðernishreinsanir gagnvart Palestínumönnum.

Miðstjórn ASÍ ítrekar áskoranir um að íslensk stjórnvöld beiti Ísrael hnitmiðuðum viðskiptaþvingunum og taki til alvarlegrar umræðu að slíta stjórnmálasambandi við glæpastjórn Netanyahus forsætisráðherra.

Tengdar fréttir

  • Yfirlýsing ASÍ vegna undirbúnings lagasetningar á verkfall Flugvirkjafélags Íslands

    Vegna undirbúnings lagasetningar á verkfall Flugvirkjafélags Íslands vegna kjaradeilu félagsins…

    Ritstjórn

    23. sep 2026

  • Ályktun miðstjórnar ASÍ vegna fjárlagafrumvarps 2027 

    Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) lýsir yfir þungum áhyggjum vegna fjárlagafrumvarps…

    Ritstjórn

    17. sep 2026

  • Miðstjórn hvetur til samstarfs um hraða uppbyggingu leiguhúsnæðis

    Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) samþykkti á fundi sínum 20 maí…

    Ritstjórn

    22. maí 2026