Miklar hækkanir á matvöru og verðbólga umfram væntingar

Höfundur

Ritstjórn

Febrúarmæling Vísitölu neysluverðs er 0,94% hærri, en mánuðinn á undan. Sé horft til breytinga frá febrúar 2025 hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,2%. Ársverðbólgan stendur því í stað frá janúar, sem er talsvert umfram væntingar helstu greiningaraðila. Miklar og þrálátar hækkanir einkenna matvörumarkaðinn.

Hækkanir síðasta mánaðar skýrðust að miklu leyti af einskiptisliðum, svo sem skattabreytingum hins opinbera, auk matvöru. Matvaran er enn stór áhrifaliður í febrúar (0,14%), en mestu munar um Húsbúnað, heimilistæki o.fl. (0,21%) auk þess ganga útsöluáhrif Fatnaðar og skófatnaðar til baka frá janúarmælingu (úr -0,27% í 0,17%). Áhrif Húsnæðis, vatns, rafmagns og annarra orkugjafa eru 0,15% á vísitölu neysluverðs í febrúar og munar þar mestu um þjónustugjöld vatns- og fráveitu, en reiknuð húsaleiga stendur nánast í stað.

Verðlagseftirlit ASÍ nemur hækkun á matvöruverði í byrjun árs 

Dagvöruvísitala ASÍ hefur hækkað um 0,85% það sem af er febrúarmánuði og mælist árshækkun vísitölunnar 4,7%. Hækkun vísitölunnar á fyrstu tveimur mánuðum ársins er nokkuð meiri en í byrjun síðasta ár þegar meðalhækkun nam 0,4% á fyrstu tveimur mánuðum ársins en nú mælist hún 0,64%.  

Fjöldi vara hækkar í verði 

Hjá Bónus og Krónunni hækkaði um fimmtungur af mældum vörum í verði milli mánaða sem er svipað hlutfall og í febrúar á síðasta ári. Flestar vörur hækkuðu í verði í Fjarðarkaupum, um 27 af hundraði, en í Prís hækkuðu sjö prósent vara í Prís milli mánaða.  

Matvara hækkar víðast hvar  

Í Bónus, Krónunni og Nettó hækkaði verð um 0,76 til 0,8% milli mánaða. Mest hækkaði verðlag í Fjarðarkaupum, um 3%, og í Hagkaupum um 1%. Af lágvöruverslunum voru minnstar verðhækkanir í Prís (0,5%). Á ársgrundvelli nema verðbreytingar á bilinu -1,6 – 10%.  Verðlag  í Krambúðinni hefur lækkað á milli ára. Verðlag í Bónus hefur hækkað um 4,6% milli ára borið saman við 3,8% í Krónunni og 5,4% í Prís. Verðlag í Nettó og Fjarðarkaupum hefur hækkað um 6,5% milli ára. 

Tengdar fréttir

  • ASÍ: Aukin skattbyrði og ekkert fé í vinnumarkaðsaðgerðir

    Alþýðusamband Íslands (ASÍ) segir fyrirhugaðar breytingar á persónuafslætti og þrepamörkum…

    Ritstjórn

    20. okt 2026

  • Hagspá ASÍ 2026 – 2028 komin út

    Útlit er fyrir hægagang í íslensku hagkerfi á næstu árum…

    Ritstjórn

    13. okt 2026

  • Kostnaður við íþróttir getur hlaupið á hundruðum þúsunda – Frístundastyrkir

    Æfingagjöld geta numið yfir hálfri milljón á ári fyrir tvö…

    Ritstjórn

    28. sep 2026