Fríhöfnin allt að 43% dýrari á leiðinni heim

Höfundur

Ritstjórn

Nærri áttunda hver vara er dýrari í komuverslun Fríhafnarinnar en í brottfararversluninni. Verðmunurinn er allt að 43%. Þetta kemur fram í samanburði verðlagseftirlits ASÍ á verðlagningu verslananna tveggja. Engin vara var dýrari í brottfararversluninni.

Verð í vefverslun Fríhafnarinnar, dutyfree.is, voru borin saman. Alls voru 3.287 vörur skoðaðar, en af þeim voru 389 misjafnt verðlagðar. Náði verðmunurinn allt frá 9 krónum (í átta tilfellum) upp í 2.000 krónur (í þrettán tilfellum) og í einu tilfelli 2.009 krónur.

Hlutfallslega var hæsti verðmunurinn á gamla íslenska brennivíninu, sem kostar 2.299 krónur á leiðinni úr landi en 3.299 krónur á leiðinni inn í landið – 43% meira. (Öðru máli gegnir um Þúfu brennivín, sem er á sama verði í báðum verslunum.) Þrjár gerðir af Bali Shag komu næstar, 40% dýrari – 6.999 á leið í landið í stað 4.999 króna á leið úr landi.

Sjá má lista yfir umræddar vörur og verðlagningu þeirra í Fríverslununum tveimur hér að neðan.

Ekki var tekið tillit til þess hvort vörur væru uppseldar í þessum samanburði. Talsvert var um að vörur væru merktar uppseldar í brottfararversluninni, en það gilti ekki sérstaklega um vörurnar sem voru ódýrari þar.

Tengdar fréttir

  • Kostnaður við íþróttir getur hlaupið á hundruðum þúsunda – Frístundastyrkir

    Æfingagjöld geta numið yfir hálfri milljón á ári fyrir tvö…

    Ritstjórn

    28. sep 2026

  • Hægt á verðhækkunum á matvöru

    Dagvöruvísitala ASÍ lækkaði um 0,11% milli ágúst og september 2026.…

    Ritstjórn

    24. sep 2026

  • Mikill munur á kostnaði við knattspyrnuiðkun barna

    Æfingagjöld vegna knattspyrnuiðkunar barna eru mjög mismunandi eftir íþróttafélögum. Samanburður…

    Ritstjórn

    15. sep 2026