Byggðarannsóknasjóður styrkir rannsókn á stöðu kvenna í láglaunastörfum

Höfundur

Ritstjórn

Verkefnið „Working-Class women, Well-being and the Welfare State: New Evidence from the Icelandic Context“ fékk nýlega styrk úr Byggðarannsóknasjóði. Markmið rannsóknarinnar er tvíþætt. Annarsvegar að rannsaka áhrif atvinnu, fjölskyldulífs og félags- og efnahagslegrar stöðu á líkamlega og andlega velferð kvenna í láglaunastörfum. Hinsvegar að greina reynslu kvenna í láglaunastörfum af íslensku velferðarkerfi og hlutverki kerfisins er í að viðhalda félagslegum ójöfnuði. Styrkurinn frá Byggðarannsóknasjóði verður nýttur til að rannsaka andlega og líkamlega heilsu kvenna með lágar tekjur, bæði í dreifbýli og þéttbýli og hvernig velferðarstefna stjórnvalda virkar eða virkar ekki fyrir þennan hóp.

Verkefnið leiðir Berglind Hólm Ragnarsdóttir, lektor við Háskólann á Akureyri og meðlimir rannsóknahópsins eru Andrea Hjálmsdóttir, lektor við HA, Bergljót Þrastardóttir, lektor við HA og Valgerður S. Bjarnadóttir, nýdoktor við Háskóla Íslands. Varða – Rannsóknastofnun vinnumarkaðarins er samstarfsaðili verkefnisins sem og RHA-Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri.

Tengdar fréttir

  • Enginn norrænn viðbúnaður án launafólks

    Helsinki, 23. september 2026 Fimmta þing Norræna verkalýðssambandsins (NFS), sem…

    Ritstjórn

  • Verðbólga yfir forsendum kjarasamninga

    Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,2% í ágúst frá fyrri mánuði…

    Ritstjórn

  • Gjaldskrárhækkun á máltíðum eldri borgara sendir út alröng skilaboð

    Reykjavíkurborg hefur ákveðið að hækka verð á hádegismat fyrir eldri…

    Ritstjórn