Haustskýrsla Kjaratölfræðinefndar kynnt á morgun

Höfundur

Ritstjórn

Haustskýrsla Kjaratölfræðinefndar verður kynnt í húsakynnum ríkissáttasemjara á morgun, föstudaginn 20. nóvember kl. 9. Í skýrslunni er umfjöllun um launaþróun í yfirstandandi kjarasamningslotu á almennum og opinberum vinnumarkaði fram til júní 2026 og um launastig í maí 2026. Einnig er í skýrslunni að finna umfjöllun um  samsetningu launa og launadreifingu, kjarasamninga sem gerðir hafa verið í lotunni, auk umfjöllunar um íslenskan vinnumarkað, þróun efnahagsmála og kaupmáttarþróun. Í fyrsta skipti er birt tölfræði um launabreytingar umfram samningsbundnar launahækkanir, launaskrið.

Kjaratölfræðinefnd er samstarfsnefnd ríkis, sveitarfélaga og heildarsamtaka á vinnumarkaði um gerð og hagnýtingu talnaefnis um laun og efnahag til undirbúnings og eftirfylgni með kjarasamningum. Í nefndinni eiga sæti fulltrúar frá Alþýðusambandi Íslands, BSRB, BHM, Kennarasambandi Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samtökum atvinnulífsins, forsætisráðuneyti, félags- og vinnumálamálaráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti, og Hagstofu Íslands.

Til kynningarinnar er fjölmiðlum boðið ásamt forystufólki og starfsfólki sem aðild eiga að nefndinni. Kynningin fer fram föstudaginn 20. nóvember í húsakynnum ríkissáttasemjara í Borgartúni 21, 4.hæð og hefst kl. 9. Guðrún Svavarsdóttir og Marinó Melsted, sérfræðingar nefndarinnar fara yfir helstu niðurstöður skýrslunnar. Viðburðinum verður einnig streymt á vef Kjaratölfræðnefndar, ktn.is.

Tengdar fréttir

  • ASÍ: Aukin skattbyrði og ekkert fé í vinnumarkaðsaðgerðir

    Alþýðusamband Íslands (ASÍ) segir fyrirhugaðar breytingar á persónuafslætti og þrepamörkum…

    Ritstjórn

  • Hagspá ASÍ 2026 – 2028 komin út

    Útlit er fyrir hægagang í íslensku hagkerfi á næstu árum…

    Ritstjórn

  • Ályktun miðstjórnar ASÍ vegna fjárlagafrumvarps 2027 

    Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) lýsir yfir þungum áhyggjum vegna fjárlagafrumvarps…

    Ritstjórn