Dómur sem nú er beðið eftir í Noregi getur haft áhrif langt út fyrir landsteinana. Hann snertir kjarna hark-hagkerfisins: eru sendlar sem fá verkefni í gegnum app sjálfstæðir verktakar eða launafólk?
Hæstiréttur Noregs tók mál Wolt-sendla fyrir dagana 17. og 18. nóvember. Málið snýst um hvort sendlarnir teljist launafólk og eigi þar með sömu réttindi og annað launafólk í Noregi, svo sem lífeyri, veikindagreiðslur, yfirvinnugreiðslur og orlof. Sendlarnir unnu mál sitt í héraðsdómi, eins og ASÍ fjallaði um á sínum tíma, en töpuðu fyrir áfrýjunardómstóli. Nú á Hæstiréttur síðasta orðið.
Wolt skilgreinir sendla sína sem sjálfstæða verktaka, svokallaða „samstarfsaðila“. Norska alþýðusambandið, LO, telur það meðvitaða ranga flokkun sem velti allri fjárhagslegri áhættu yfir á sendlana, svo fyrirtækið komist hjá hefðbundinni ábyrgð atvinnurekanda.
Algrím í stað verkstjóra
Einn sendlanna sem fer með málið, Espen Utne Landgraff, segir að appið og algrím Wolt ráði öllu í daglegu starfi sendla. Í nýrri greiningu LO kemur fram að verkvangsfyrirtæki (platform work) noti gögn til að aðlaga laun og verð í rauntíma og geti sérsniðið greiðslur til hvers og eins án þess að sendlarnir sjái hvernig þær eru reiknaðar. LO kallar þetta algrímska launamismunun.
Afleiðingarnar geta verið alvarlegar. Þar sem enginn ber ábyrgð sem atvinnurekandi er vinnan unnin án skipulegs áhættumats, þjálfunar eða viðunandi öryggisbúnaðar. Sá sem slasast og getur ekki unnið lengi stendur þá uppi tekjulaus.
Lögmaður LO í málinu líkir stöðunni við hafnarverkamenn á 19. öld, lausaverkafólk sem mætti á bryggjuna og vonaði að verkstjórinn veldi það til vinnu þann daginn.
Sama deila á Íslandi
Deilan er ekki bundin við Noreg. Um miðjan september lögðu 60 sendlar Wolt hér á landi niður störf og mótmæltu fyrir utan höfuðstöðvar fyrirtækisins í Ármúla. Þeir segja laun sín hafa lækkað um 40 prósent á einu ári.
Miðstjórn ASÍ lýsti í kjölfarið yfir eindregnum stuðningi við kjarabaráttu sendlanna. Hún benti á að störf þeirra tilheyri skipulögðum íslenskum vinnumarkaði og skoraði á fyrirtæki sem reka stafræna vinnuvettvanga að skrá starfsfólk sitt réttilega sem launafólk og fylgja gildandi kjarasamningum.
Finnbjörn A. Hermannsson, þáverandi forseti ASÍ, sagði þá að verkalýðsfélög hefðu ítrekað reynt að ná samkomulagi við Wolt um kjarasamning en fyrirtækið hefði hafnað því. Að hans sögn fengu sendlar áður um 1.500 krónur á tímann eftir að launatengd réttindi höfðu verið dregin frá. Ef lækkunin er rétt eru það nú um 900 krónur. Hann benti jafnframt á að lágmarkslaun gildi í landinu og að ASÍ sé í sambandi við systursamtök á Norðurlöndunum, sem glími við sama vanda.
Stjórn Eflingar lýsti einnig yfir samstöðu með sendlunum og sagði að störf sendla hjá Wolt og sambærilegum fyrirtækjum væru launavinna sem ætti að falla undir íslenska kjarasamninga.
Wolt hafnar því að fyrirtækið stundi gerviverktöku og segir sendlana sjálfstæða verktaka sem ráði því hvenær þeir vinna.
Fordæmi annars staðar á Norðurlöndum
Dómstólar hafa áður tekið afstöðu í sambærilegum málum. Í Finnlandi, heimalandi Wolt, úrskurðaði æðsti stjórnsýsludómstóll landsins að sendlar fyrirtækisins væru launafólk. Með því sneri hann við niðurstöðu lægra dómstigs, sem hafði talið þá sjálfstæða verktaka.
Niðurstöðu Hæstaréttar Noregs verður því fylgst grannt með hér á landi. Í ályktun miðstjórnar ASÍ frá því í september segir að uppgangur hark-hagkerfisins sé alþjóðlegt vandamál og að stafræn stjórnun og ný rekstrarform megi aldrei verða leið til að færa ábyrgð og áhættu atvinnurekstrar yfir á einstaklinga.





