Landsréttur hefur dæmt atvinnurekanda skaðabótaskyldan fyrir að hafa ekki haft lögbundið samráð við fulltrúa starfsfólks eða tilkynnt Vinnumálastofnun um fyrirhugaðar uppsagnir áður en gripið var til hópuppsagna. Dómurinn féll 14. október síðastliðinn í máli nr. 435/2025 og markar mikilvæg tímamót í réttarvernd launafólks. Með honum er staðfest að brot gegn samráðsskyldu samkvæmt lögum um hópuppsagnir geti leitt til skaðabótaábyrgðar.
Í málinu var deilt um hvort uppsagnirnar féllu undir lög um hópuppsagnir og hvort skortur á lögbundnu samráði gæti leitt til skaðabótaábyrgðar. Starfsmanninum sem höfðaði málið hafði verið sagt upp störfum ásamt 13 öðrum vegna skipulagsbreytinga. Fyrir lá að ekkert lögbundið samráð hafði farið fram og að uppsagnirnar höfðu ekki verið tilkynntar Vinnumálastofnun, eins og lögin gera ráð fyrir.
Undir rekstri málsins var aflað ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins. Álitið laut meðal annars að því hverjir teljast starfsmenn þegar metið er hvort uppsagnir falli undir lög um hópuppsagnir. Einnig var fjallað um viðurlög við brotum gegn lögunum og þá kröfu að þau séu skilvirk, í réttu hlutfalli við brotið og hafi varnaðaráhrif.
Með hliðsjón af áliti EFTA-dómstólsins komst Landsréttur að þeirri niðurstöðu að um hópuppsagnir hefði verið að ræða og því hefði borið að fylgja málsmeðferðarreglum laganna. Þar á meðal er skýr skylda atvinnurekanda til að hafa samráð við fulltrúa starfsfólks áður en gripið er til hópuppsagna og að tilkynna Vinnumálastofnun innan tímamarka laganna um yfirvofandi hópuppsagnir.
Landsréttur tók sérstaklega fram að óvissa um hvort samráð hefði getað haft áhrif á ákvörðunina um uppsagnirnar stæði ekki í vegi fyrir skaðabótaábyrgð. Taldi rétturinn, að virtum málsatvikum, að skilyrði skaðabótaábyrgðar væru uppfyllt og dæmdi íslenska ríkið til greiðslu skaðabóta.
Niðurstaða Landsréttar hefur verulega þýðingu fyrir réttarvernd launafólks við hópuppsagnir og undirstrikar mikilvægi þess að atvinnurekendur virði lögbundna samráðsskyldu. Samráði er ætlað að tryggja að fulltrúar starfsfólks fái raunverulegt tækifæri til að hafa áhrif á fyrirhugaðar uppsagnir áður en endanleg ákvörðun er tekin. Sé þeirri skyldu ekki sinnt er grafið undan þeim réttindum sem lögunum er ætlað að standa vörð um. Með dómnum er jafnframt staðfest að skaðabótaábyrgð vegna brota á samráðsskyldu er ekki háð því að sýnt sé fram á að samráð hefði breytt ákvörðun atvinnurekanda. Slík krafa myndi enda veikja verulega þá vernd sem lögbundnu samráði er ætlað að tryggja.





