Húsnæðiskaup utan seilingar fyrir stóran hóp launafólks

Höfundur

Ritstjórn

Vinnan.is, vefrit Alþýðusambands Íslands, mun á næstu dögum gera grein fyrir þeim kröfum og áherslum sem málefnanefndir 47. þings ASÍ unnu að og þingið samþykkti.

Húsnæðiskaup eru orðin óraunhæfur kostur fyrir stóran hluta lág- og millitekjufólks. Aðeins 2,5% seldra íbúða á höfuðborgarsvæðinu rúmast innan kaupgetu einstaklings með tekjur við efri mörk almenna íbúðakerfisins. Alþýðusamband Íslands (ASÍ) krefst þess að stjórnvöld og sveitarfélög axli mun meiri ábyrgð á húsnæðismálum.

Þetta kemur fram í ályktun um efnahagslegt og félagslegt réttlæti sem 47. þing ASÍ samþykkti í dag. Þar segir að hátt húsnæðisverð og háir vextir hafi reist sífellt hærri þröskulda inn á eignamarkaðinn.

Meðalverð seldrar íbúðar í fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu var 76,5 milljónir króna á árunum 2025–2026. Einstaklingur með 761.500 krónur í mánaðarlaun getur hins vegar, miðað við núverandi vexti og lánþegaskilyrði, að hámarki keypt íbúð fyrir 42,5 milljónir að því gefnu að viðkomandi eigi meira en 4,2 milljónir króna í eigið fé, króna samkvæmt útreikningum ASÍ.

Gögn um seldar íbúðir sýna hversu þröng staðan er. Yfir 90% eigna seldust á meira en 52,5 milljónir króna og aðeins 2,5% þeirra féllu innan kaupgetu einstaklings með hámarkstekjur almenna íbúðakerfisins. Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur jafnframt bent á mikla aukningu í fjárhagslegum stuðningi foreldra við íbúðakaup ungs fólks.

Þeir sem komast ekki inn á eignamarkaðinn sitja margir eftir á dýrum leigumarkaði. Tæplega helmingur leigjenda býr við íþyngjandi húsnæðiskostnað og húsnæðisöryggi þeirra er mun minna en hjá eigendum.

Þing ASÍ krefst hraðari uppbyggingar á óhagnaðardrifnu húsnæði. Þá verði húsaleigulög endurskoðuð, leigubremsa innleidd og húsnæðisstuðningi beint í ríkari mæli að þeim sem búa við þyngstan húsnæðiskostnað.

Ályktun 47. þings ASÍ um efnahagslegt og félagslegt réttlæti má lesa í heild á þingvef ASÍ.

Tengdar fréttir

  • 47. þing ASÍ kýs nýtt forsetateymi og miðstjórn

    47. þing Alþýðusambands Íslands kaus í dag forseta, þrjá varaforseta…

    Ritstjórn

    16. okt 2026

  • 47. þing ASÍ krefst réttlátra umskipta á breyttum vinnumarkaði

    47. þingi Alþýðusambands Íslands, sem staðið hefur yfir á Hilton…

    Ritstjórn

    16. okt 2026

  • Georg Páll Skúlason nýr forseti ASÍ

    Georg Páll Skúlasonvar var nú rétt í þessu forseti Alþýðusambands…

    Ritstjórn

    16. okt 2026