Verð á olíu hefur farið lækkandi á heimsmörkuðum undanfarna daga í kjölfar friðarviðræðna milli Bandaríkjanna og Íran. Alls hefur verðið lækkað um 37% frá því það var sem hæst í apríl og verðið nú svipað og áður en átökin hófust. Lækkun á olíuverði hefur einnig komið fram í lækkun á innflutningsverði á bensíni. Þar hefur verðið lækkað um 21% frá því það var hæst um miðjan maí.
Á sama tíma hefur smásöluverð á bensíni lækkað um tæplega 3%. Hlutur olíufélaga af hverjum seldum lítra hefur því farið vaxandi og er nú svipaður og í upphafi árs, eða um 60 krónur af lægsta verði. Alþýðusambandið hefur áður bent á hækkandi hlut olíufélaga síðustu ár sem jafnframt er sögulega hár um þessar mundir. ASÍ hefur einnig bent á að verðlækkanir á heimsmarkaðsverði og gengisstyrkingar miðlist treglega í smásöluverð á bensíni (Gengisáhrifa gætir ekki á íslenskum bensíndælum og Ný grein í Vísbendingu: Kílómetragjald og samkeppni á eldsneytismarkaði).
Mest lækkun á stöð Costco
Lægsta verð á bensínlítranum er að finna á stöð Costco í Kauptúni og hefur það lækkað um 10 krónur á lítrann frá því það var hæst, eða um 3,5%. Áður hafði ASÍ bent á að lækkun virðisaukaskattlækkunar hafi skilað sér hjá öllum smásölum nema Costco (Lækkun virðisaukaskatts skilað sér að fullu hjá öllum nema Costco). Hjá öðrum smásölum hefur lækkunin verið á bilinu 5-6 krónur á lítrann á lægsta lítraverð eða um 2,5%.
Hlutur olíufélaga í bensínlítranum hækkað að nýju
Lækkun á innflutningsverði eldsneytis án samsvarandi lækkunar á smásöluverði hefur leitt til þess að hlutur olíufélaga í hverjum seldum lítra hefur farið vaxandi að nýju. Í upphafi árs áætlaði ASÍ að hlutur olíufélaga í seldum bensínlítra væri um 60 krónur af lægsta lítraverði en með hlut olíufélaga er átt við þann hlut sem stendur undir öllum öðrum kostnaði við sölu auk arðsemi. (Nýtt kílómetragjald – dýrara að keyra sparneytnar bifreiðar) Töluvert getur munað á lægsta og hæsta lítraverði hjá sama olíufélagi og því getur hlutur af hærra lítraverði verið umtalsvert meiri.
Eftir að átök brutust út í Íran mældust skarpar verðhækkanir á olíuverði. Samhliða lækkaði hlutur olíufélaga auk þess sem lækkun virðisaukaskatts á bensín leiddi til þess að áhrifin verðhækkana komu ekki fram af fullum þunga í smásöluverði. Undanfarnar vikur hafa verðlækkanir á bensíni ekki skilað sér í samsvarandi lækkun á smásöluverði og hefur áætlaður hlutur farið hækkandi og er nú ríflega 60 krónur, svipað og í upphafi árs.




