Útlínur klárar að nýjum kjarasamningi SGS við ríkið

Höfundur

Ritstjórn

Viðræðunefnd Starfsgreinasambandsins og Samninganefnd ríkisins náðu samkomulagi um útlínur á nýjum kjarasamningi á fundi í gær hjá ríkissáttasemjara. Viðræður hafa staðið undanfarna mánuði og hefur m.a. verið að störfum vinnuhópur aðila á opinberum markaði um breytingar á fyrirkomulagi vaktavinnu. Endanlegar tillögur starfshóps liggja ekki fyrir. Þegar þær eru frágengnar kemur samninganefnd SGS saman, vonandi strax eftir helgi, og tekur samninginn til umræðu og afgreiðslu. Ekki er hægt að gefa neinar upplýsingar um einstök atriði samkomulagsins fyrr en að lokum fundi samninganefndar Starfsgreinasambandsins.

Tengdar fréttir

  • Haustskýrsla kjaratölfræðinefndar 2026

    Núverandi kjarasamningslota hófst í mars 2024 og hafa um 260…

    Ritstjórn

  • Haustskýrsla Kjaratölfræðinefndar kynnt á morgun

    Haustskýrsla Kjaratölfræðinefndar verður kynnt í húsakynnum ríkissáttasemjara á morgun, föstudaginn 20.…

    Ritstjórn

  • Aðgerðir tengdar kjarasamningum taka gildi

    Við gerð kjarasamninga gerði verkalýðshreyfingin kröfur á stjórnvöld um aðgerðir…

    Ritstjórn