Formannafundur Starfsgreinasambands Íslands lýsir yfir þungum áhyggjum af því hvernig gengur að innleiða og skipuleggja styttri vinnuviku hjá starfsmönnum sveitarfélaga.
Í kjarasamningum sem undirritaðir voru síðasta vor var samið um styttingu vinnuvikunnar. Í samningum er lögð áhersla á að það fari fram alvöru samtal milli starfsmanna og stjórnenda um fyrirkomulag og innleiðingu á hverri stofnun/starfsstöð fyrir sig.
Nú er ljóst að innleiðingin gengur mun hægar en vonir stóðu til hjá sveitarfélögunum og mörg þeirra hafa annað hvort ekki sinnt samningsbundnu samráði við sína starfsmenn eða tekið sér það vald að ákveða fyrirkomulagið án aðkomu okkar fólks.
Fundurinn krefst þess að Samband íslenskra sveitarfélaga, sem fer með samningsumboð sveitarfélaganna, tryggi að sveitarfélögin í landinu standi við kjarasamninga og tryggi sínum starfsmönnum betri vinnutíma eins og um var samið.

Illa gengur að stytta vinnuvikuna hjá sveitarfélögunum
Tengdar fréttir
Aðgerðir tengdar kjarasamningum taka gildi
Við gerð kjarasamninga gerði verkalýðshreyfingin kröfur á stjórnvöld um aðgerðir…
Mikill stuðningur við kjarasamning SGS og SA
Kjarasamningur Starfsgreinasambands Íslands (SGS) og Samtaka atvinnulífsins (SA) hefur verið…
Vörukarfa ASÍ hækkaði í 6 af 8 verslunum á 6
Á 6 mánaða tímabili, frá lokum mars 2021 fram í…



