Stuðningsyfirlýsing ASÍ vegna verkfallsaðgerða í Færeyjum

Höfundur

Ritstjórn

Síðan 14. maí sl. hafa staðið yfir umfangsmiklar vinnustöðvanir í Færeyjum þar sem stór hluti vinnandi fólks hefur lagt niður störf og krefst betri kjara. ASÍ lýsir yfir fullum stuðningi við vinnustöðvun félagsfólks í Føroya Arbeiðarafelag, Havnar Arbeiðarafelag, Klaksvíkar Arbeiðskvinnufelag og Klaksvíkar Arbeiðsmannafelag.

Miðstjórn ASÍ beinir þeim tilmælum til félagsfólks aðildarsamtaka sinna að ganga hvorki beint né óbeint í störf félagsfólks framangreindra samtaka meðan á vinnustöðvun stendur.

Tengdar fréttir

  • Brot á samráðs- og tilkynningarskyldu við hópuppsagnir leiddi til skaðabóta

    Landsréttur hefur dæmt atvinnurekanda skaðabótaskyldan fyrir að hafa ekki haft…

    Ritstjórn

  • Mikilvæg niðurstaða fyrir launafólk

    Niðurstaða viðræðna um forsendur kjarasamninganna er mikið fagnaðarefni. Samningarnir halda…

    Finnbjörn A. Hermannsson

  • Launakröfur stéttarfélaga námu 1,4 milljörðum króna á síðasta ári

    Fimmtán aðildarfélög Alþýðusambands Íslands gerðu 1.209 launakröfur fyrir hönd félagsfólks…

    Ritstjórn