Miðstjórn hvetur til samstarfs um hraða uppbyggingu leiguhúsnæðis

Höfundur

Ritstjórn

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) samþykkti á fundi sínum 20 maí ályktun þar sem nýkjörnar sveitarstjórnir eru hvattar til að taka höndum saman með verkalýðshreyfingunni um hraða uppbyggingu óhagnaðardrifins leiguhúsnæðis á næstu misserum.

Í ályktuninni segir að með því móti geti sveitarfélög stulað að hjöðnun verðbólgu og bættum lífskjörum fólks á eigumarkaði.

Fram kemur að nú um stundir búi tæpur helmingur leigjenda við íþyngjandi húsnæðiskostnað og lítið húsnæðisöryggi. Stór hópur geti þannig hvorki safnað sér fyrir útborgun á íbúð eða uppfyllt skilyrði til húsnæðislántöku.   

Þá segir að frá árinu 2016 hafi tekist að reisa um fjögur þúsund íbúðir í almenna íbúðakerfinu fyrir ólíka hópa. Af þeim séu um 1.100 sem byggðar hafa verið fyrir tekjulágt fólk á vinnumarkaði.

Minnkandi hlutfall óhagnaðardrifinna íbúða

Vakin er athygli á að umfang óhagnaðardrifinna íbúða sé nú mun minna en um aldamótin þegar verkamannabústaðakerfið var til staðar. Verkamannabústaðir hafi þá verið um 10% af íbúðum í Reykjavík. Hlutfall Bjargs af íbúðafjölda sé nú um 1%.  

Almenna íbúðakerfið hafi sannað sig sem raunhæfur kostur til að tryggja húsnæðisöryggi og viðráðanlegt leiguverð hjá tekjulágu fólki. Nú bíði um fjögur þúsund fjölskyldur sem eftir að komast inn í húsnæði hjá Bjargi íbúðafélagi.  

Ályktun miðstjórnar má lesa hér:

Tengdar fréttir

  • ASÍ varar við vaxandi valdi stórfyrirtækja og auðmanna

    Alþýðusamband Íslands (ASÍ) varar við þróun í alþjóðasamskiptum þar sem…

    Ritstjórn

  • Launafólk njóti ávinnings tæknibreytinga

    Gervigreind, sjálfvirknivæðing og önnur tækniþróun munu hafa mikil áhrif á…

    Ritstjórn

  • Félagslegum undirboðum verði mætt af fullri hörku

    Alþýðusamband Íslands (ASÍ) mun berjast af fullri hörku gegn félagslegum…

    Ritstjórn