Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,44% milli mánaða í október og mældist verðbólga óbreytt milli mánaða, 5,9%. Sé horft fram hjá áhrifum húsnæðiskostnaðar hækkaði vísitalan um 0,49% og mælist ársverðbólga sú sama á mælikvarða VNV og VNV án húsnæðis.
Áhrif verðbreytinga á heimsmarkaðsverði olíu vógu þyngst í mælingu mánaðarins en verð á dísil hækkaði um 11,2% milli mánaða (0,11% vísitöluáhrif) og bensín um 8% (0,16% vísitöluáhrif). Verðhækkanir á eldsneyti skýrast bæði af þróun innkaupaverðs og aukinni álagningu olíufélaga.
0,37% hækkun á matvöruverði
Hækkun á mat- og drykkjarvöru var í samræmi við mælingar verðlagseftirlits ASÍ í mánuðinum. Mat- og drykkjarvörur hækkuðu um 0,37% í október en samkvæmt mælingum verðlagseftirlitsins skýrist hluti af hækkunum af verðhækkunum í Nettó þar sem áhrif útsöludaga í september gengu til baka. Verðhækkanir skýrast þó einnig af hækkunum á kjöti, t.d. 3% hækkunum á lambakjöti og 3,1% hækkun á kjúklingakjöti ásamt því að enn mældust verðhækkanir á mjólkurvörum í kjölfar síðustu ákvörðunar verðlagsnefndar.
Nokkuð var um mældar verðlækkanir í mánuðinum. Í stærstum hluta var um verðlækkanir á innfluttri vöru að ræða, t.d. kornvörum og ávöxtum, sem skýrist af hagfelldri þróun gengis. Verðlækkanir á matvöru höfðu lítil áhrif á þróun vísitölunnar.
Minni hækkanir á húsnæðiskostnaði
Nokkuð minni hækkanir mældust á húsnæðiskostnaði í október en undangengna mánuði. Greidd húsaleiga hækkaði um 0,5% milli mánaða og reiknuð húsaleiga um 0,4%. Of snemmt er að segja hvort þróunin sé vísbending um að aukinn slaki á húsnæðismarkaði sé farinn að koma fram í hækkunum á leiguverði. Á ársgrundvelli hefur húsnæðiskostnaður hækkað um 6,1% sem skýrist bæði af beinum húsnæðiskostnaði en einnig af hækkunum á raforku (6,4% árshækkun) og hita (10,6%).
Séu aðrir liðir skoðaðir lækkaði verð á hótelgistingu um 19,35% í mánuðinum, húsbúnaður um 1% og verð á nýjum bifreiðum um 1%. Verð á flugfargjöldum lækkaði einnig, um 3% milli mánaða, en flugfargjöld hafa hækkað mikið milli ára, um 30%.
Verðhækkun á eldsneyti vó þyngst í október
Verðhækkanir á eldsneyti voru megindrifkraftur hækkana á vísitölu neysluverðs í október. Samkvæmt Hagstofunni hækkaði verð á dísel um 11,2% milli mánaða og bensín um 8%. Alls má rekja 0,27 prósentur af hækkun vísitölunnar í október til fyrrgreindra hækkana. Er þar um annan mánuðinn að ræða þar sem umtalsverðra verðhækkana gætir á eldsneytisverði en í september hækkaði díselverð um 18,1% og bensínverð um 16,1%.
Rekja má hækkanir á eldsneyti síðustu mánaða til nokkurra þátta.
- Í fyrsta lagi gekk tímabundin lækkun á virðisaukaskatti til baka í byrjun september en lækkunin sem tók gildi þann 1. maí fólst í lækkun eldsneytis í neðra þrep virðisaukaskatts. Þau áhrif komu hratt fram í byrjun september þar sem allir aðilar hækkuðu verð í fyrstu vikunni.
- Í öðru lagi gerðu frekari hækkanir á heimsmarkaðsverði vart við sig um miðjan septembermánuð. Heimsmarkaðsverð á bensíni hækkaði um tæplega 10% frá ágústlokum til byrjunar október en hækkunin gekk að hluta til baka í október.
- Í þriðja lagi hefur hlutur olíufélaga aukist í hverjum seldum lítra. Sé miðað við meðaltal lægstu verða hefur hlutur olíufélaga aukist um 16 krónur á hvern seldan lítra frá því í lok ágúst.
Alþýðusambandið hefur fjallað umtalsvert um þróun eldsneytisverðs á árinu. Við innleiðingu kílómetragjalds um áramót voru vörugjöld á eldsneyti felld niður. Í umfjöllun um breytingarnar taldi ASÍ að niðurfellingin hefði skilað sér í lægra verði á eldsneyti en benti um leið á að í aðdragandanum hefði hlutur olíufélaga í seldum lítra hækkað undanfarin ár og væri hár í sögulegu samhengi (https://vinnan.is/nytt-kilometragjald-dyrara-ad-keyra-sparneytnar-bifreidar/). Meðaltal lægstu verða á bensíni hefur hækkað um 52 krónur á lítra frá ágústlokum. Um 27 krónur af því skýrast af auknum virðisaukaskatti, um 7 krónur af hærra innkaupsverði en um 16 krónur má rekja til aukins hlutar olíufélaga í seldum lítra.
Verðbólga gæti aukist í nóvember
Verðbólguþróun á árinu hefur litast af opinberum hækkunum og alþjóðlegri þróun. Mat Seðlabankans er að undirliggjandi verðbólga sé 4,4% en sá mælikvarði undanskilur áhrif óbeinna skatta, eldsneytisverð, sveiflukennda matvöru og opinbera þjónustu. Nokkur óvissa ríkir um verðbólguþróun í nóvember sökum grunnáhrifa. Vísitala neysluverðs lækkaði þannig í nóvember 2025 þar sem umtalsverð útsöluáhrif komu fram í mælingunni vegna afsláttardaga. Verði slíkum áhrifum ekki til að dreifa í ár verður mæld hækkun í nóvember hærri en ella.
Í nýlegri Hagspá ASÍ er fjallað um að vænta megi þess að ársverðbólga hjaðni frá desember en þar hefur áhrif að ríki og sveitarfélög hafa skuldbundið sig til að takmarka gjaldahækkanir við 2,5% í upphafi næsta árs. Sömu tilmælum verður beint til fyrirtækja í eigu hins opinbera. Samkvæmt spá ASÍ gengur verðbólga niður og verður að jafnaði 4,0% árið 2027 en gæti verið 4,3% að jafnaði ef dekkri sviðsmynd um olíuverðþróun raungerist.





