Yfirlýsing ASÍ vegna undirbúnings lagasetningar á verkfall Flugvirkjafélags Íslands

Höfundur

Ritstjórn

Vegna undirbúnings lagasetningar á verkfall Flugvirkjafélags Íslands vegna kjaradeilu félagsins við Icelandair vill Alþýðusamband Íslands minna ríkisstjórn og Alþingi á að réttur launafólks til að semja í frjálsum kjarasamningum um kaup og kjör er varinn í Stjórnarskrá Íslands og lögum um stéttarfélög og vinnudeilur. 

Alþingi Íslendinga og íslensk stjórnvöld eru einnig bundin af samþykktAlþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) nr. 87 um félagafrelsi, verndun þess og verkfallsrétt, samþykkt ILO nr. 98 um réttinn til þess að semja sameiginlega auk þess að vera bundin af 11.gr. mannréttindasáttmála Evrópu. 

Kjarasamningsrétturinn og rétturinn til þess að beita lögmætum aðgerðum til þess að knýja á um kröfur í kjaradeilu eru þannig meðal helgustu mannréttinda launafólks og frjálsrar verkalýðshreyfingar. 

Lagasetning sem beinist að lögmætum verkfallsaðgerðum sem ógna hvorki lífi né heilsu er og verður ólögmæt og íslensk stjórnvöld hafa sætt ítrekuðum athugasemdum ILO vegna brota á grundvallarréttindum launafólks í þessu efni. 

ASÍ krefst þess að stjórnvöld virði þessi grundvallarréttindi launafólks og skorar á atvinnurekendur að ganga til raunverulegra viðræðna við alla viðsemjendur sína í stað þess að treysta á ólögmætt inngrip Alþingis. 

Tengdar fréttir

  • Ályktun miðstjórnar ASÍ um breytingar á Loftbrú

    Miðstjórn Alþýðusambands Íslands skorar á stjórnvöld að draga þegar í…

    Ritstjórn

  • Brot á samráðs- og tilkynningarskyldu við hópuppsagnir leiddi til skaðabóta

    Landsréttur hefur dæmt atvinnurekanda skaðabótaskyldan fyrir að hafa ekki haft…

    Ritstjórn

  • ASÍ varar við vaxandi valdi stórfyrirtækja og auðmanna

    Alþýðusamband Íslands (ASÍ) varar við þróun í alþjóðasamskiptum þar sem…

    Ritstjórn