peningaseðlar

Óskiljanleg ákvörðun peningastefnunefndar  

Höfundur

Ritstjórn

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) segir óskiljanlega þá ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands frá því fyrr í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum í 9,25%. Ákvörðunin sé fallin til að þjóna hagsmunum fjármagnsafla og auka ójöfnuð í landinu.  

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í ályktun sem miðstjórn ASÍ samþykkti á fundi sínum í dag, miðvikudaginn 8 maí. Staðhæft er að forsendur séu fyrir hendi til að lækka vexti í landinu og minnt er á að verkalýðshreyfingin hafi fallist á hófsamar launahækkanir í nýgerðum kjarasamningum til að stuðla að hjöðnun verðbólgu og þar með lækkun vaxta. Launafólk í landinu krefjist þess að ríki og sveitarfélög standi við skuldbindingar sínar til að það markmið geti orðið að veruleika. 

Miðstjórn segir neyðarástand ríkja á húsnæðismarkaði og gagnrýnir harðlega ríki og sveitarfélög fyrir getu- og úrræðaleysi á þeim vettvangi.

Nálgast má ályktun miðstjórnar hér.

Tengdar fréttir

  • ASÍ varar við vaxandi valdi stórfyrirtækja og auðmanna

    Alþýðusamband Íslands (ASÍ) varar við þróun í alþjóðasamskiptum þar sem…

    Ritstjórn

    19. okt 2026

  • Launafólk njóti ávinnings tæknibreytinga

    Gervigreind, sjálfvirknivæðing og önnur tækniþróun munu hafa mikil áhrif á…

    Ritstjórn

    18. okt 2026

  • Félagslegum undirboðum verði mætt af fullri hörku

    Alþýðusamband Íslands (ASÍ) mun berjast af fullri hörku gegn félagslegum…

    Ritstjórn

    17. okt 2026