Hagspá ASÍ 2026–2028
Þjóðhagsspá · október 2026
Spá ASÍ 2026–2028
| Hlutfallsleg breyting, % | 2025 | 2026 | 2027 | 2028 |
|---|---|---|---|---|
| Einkaneysla | 3,6 | 1,1 | 2,2 | 3,0 |
| Samneysla | 0,7 | 1,1 | 1,4 | 1,4 |
| Fjármunamyndun | 4,8 | 2,6 | −6,7 | −0,2 |
| þar af atvinnuvegir | 7,8 | 6,3 | −8,0 | −1,7 |
| þar af húsnæði | −5,4 | −6,7 | −9,0 | 3,0 |
| þar af hið opinbera | 5,4 | −1,7 | 2,2 | 2,2 |
| Þjóðarútgjöld | 3,6 | 1,7 | −0,3 | 1,8 |
| Útflutningur | 1,5 | −0,5 | 1,9 | 2,6 |
| Innflutningur | 7,3 | −0,7 | −1,8 | 2,0 |
| Landsframleiðsla | 1,1 | 1,9 | 1,1 | 2,0 |
| Verðbólga ¹ | 4,1 | 5,5 | 4,0 | 2,5 |
| Verðbólga í lok árs ¹ | 4,2 | 5,8 | 3,4 | 2,3 |
| Atvinnuleysi ² | 4,3 | 5,8 | 5,2 | 4,8 |
| Stýrivextir ³ | 7,7 | 7,5 | 7,0 | 6,1 |
| Gengisvísitala ⁴ | −4,3 | −0,2 | −0,1 | −1,7 |
¹ Breyting milli ársmeðaltala vísitölu neysluverðs. „Í lok árs“ er fjórði ársfjórðungur.
² Hlutfall af áætluðum mannafla, ársmeðaltal.
³ Ársmeðaltal meginvaxta Seðlabankans.
⁴ Breyting milli ára, %
Heimild: QMM grunnur Seðlabanka Íslands, Hagstofa Íslands, HMS og útreikningar ASÍ
Helstu atriði
Útlit er fyrir hægagang í íslensku hagkerfi á næstu árum og mikið atvinnuleysi samkvæmt nýrri hagspá ASÍ fyrir árin 2026-2028. Vöxtur hagkerfisins hefur verið hóflegur, í sögulegu samhengi, og útlit er fyrir áframhald þar á. Landsframleiðsla eykst um 1,9% í ár og 1,1% á því næsta, en tekur lítillega við sér árið 2028, samkvæmt hagspánni.
Umtalsverð óvissa ríkir um bæði efnahags- og verðlagsþróun. Óvissan stafar meðal annars af alþjóðlegri þróun en einnig hættunni á að hagkerfið kólni hraðar en spár gera ráð fyrir. Samkomulag á vinnumarkaði um framlengingu kjarasamninga og markvissar aðgerðir hins opinbera draga úr óvissu um verðlagsþróun og skapa einnig forsendur fyrir auknum verðstöðugleika.
Á spátímanum dregur úr innlendri eftirspurn, einkum fjárfestingu. Samdráttur verður í fjármunamyndun á næsta ári (-6,7%), sem skýrist helst af minni atvinnuvegafjárfestingu og snörpum viðsnúningi í íbúðafjárfestingu. Nýlegir hagvísar benda til þess að íbúðamarkaðurinn kólni hratt. Nýjar framkvæmdir, milli mars og september 2026, hafa ekki verið færri í talningum HMS frá 2022 og fullbúnar, óseldar íbúðir, nú í september, voru 1.855, á móti 1.409 í mars. Íbúðafjárfesting dregst saman um 6,7% á þessu ári og 9,0% á því næsta, og hefur mest áhrif til að draga úr hagvexti á árinu 2027. Áhrifin birtast í lækkun á raunverði húsnæðis sem spáð er að lækki um 2,8% í ár og 2,4% á næsta ári.
Framlag utanríkisviðskipta til hagvaxtar er á sama tíma jákvætt. Þar munar helst um vöxt í stóriðju og sjávarútvegi. Framleiðslugeta í áliðnaði leitar í samt horf eftir samdrátt í lok síðasta árs. Þá jókst upphafsráðgjöf um aflamark loðnu fyrir fiskveiðiárið 2026/2027 um 81% frá lokaráðgjöf síðasta fiskveiðiárs.
Helstu breytingar frá fyrri spá hagsviðs ASÍ lúta að þróun verðbólgu og vinnumarkaðar. Atvinnuleysi eykst úr 4,3% í 5,8% á þessu ári, sem jafngildir því að hátt í 14 þúsund manns séu án atvinnu. Batinn verður hægur og spáin gerir ráð fyrir að atvinnuleysi verði enn um 4,8% árið 2028, þrátt fyrir vöxt framleiðslu yfir sama tímabil.
Til skemmri tíma verður verðbólga áfram talsvert yfir markmiði Seðlabankans. Gangi spáin eftir verður ársverðbólgan 2026 um 5,5%. Forsendur eru fyrir hjöðnun verðbólgunnar er líður á næsta ár en samkvæmt spánni verður verðbólga 4% að jafnaði á árinu 2027 en hjaðnar í 2,5% árið 2028. Í spánni er fráviksdæmi þar sem skoðuð eru áhrif af 20% hækkun olíuverðs sem leiðir til aukinnar verðbólgu sem nemur 0,3 prósentustigum á árinu 2027.
Hægir á vexti einkaneyslunnar
Þrátt fyrir hátt vaxtastig hefur nokkur þróttur verið í neyslu heimilanna. Bráðabirgðatölur benda til þess að einkaneysla hafi aukist um 3,6% á árinu 2025 eftir hægan vöxt á árunum 2023-2024. Í hagspá ASÍ frá því í október 2025 var bent á að þessi vöxtur væri í nokkru ósamræmi við þróun kaupmáttar ráðstöfunartekna og því velt upp hvort aukin sókn heimila í verðtryggð lán hafi stuðlað að hærra stigi neyslu en ella til skemmri tíma. Nýlegar tölur um einkaneyslu eftir útgjaldaliðum gefa til kynna að vöxturinn hafi meðal annars verið drifinn áfram af útgjöldum erlendis og miklum vexti í kaupum á ökutækjum. Aukningu í bílakaupum má að líkindum rekja til breytinga sem gerðar voru á vörugjöldum ökutækja í upphafi þessa árs og kunna að hafa leitt til þess að kaupum hafi verið flýtt áður vörugjaldahækkanir tóku gildi.
Nokkuð hratt hefur dregið úr vexti kaupmáttar ráðstöfunartekna á mann sem mældist 0,5% á árinu 2025 og var um 0,8% á fyrri helmingi þessa árs. Þróun ráðstöfunartekna er í samræmi við niðurstöður greiningar stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins á tekjuþróun ólíkra samfélagshópa. Í skýrslu hópsins kemur fram að vöxtur kaupmáttar hafi verið hóflegur á árunum 2023-2025 en dreifst með ólíkum hætti milli samfélagshópa, sérstaklega þegar litið er til aldurshópa. Þannig hafi hærra vaxtastig leitt til aukinnar vaxtabyrði fólks undir sextugu en aukið vaxtatekjur fólks yfir sextugu.
Fjárhagsleg staða heimila er heilt á litið sterk á marga mælikvarða. Vanskil hafa ekki aukist að ráði en vaxandi atvinnuleysi gæti hins vegar til skemmri tíma leitt til aukins greiðsluvanda heimila. Skuldir heimila sem hlutfall af ráðstöfunartekjum eru litlar í sögulegu samhengi. Á móti hefur vaxtabyrði þyngst töluvert, sérstaklega meðal yngri og skuldsettari lántaka.
Meðal 25-29 ára einstaklinga með íbúðalán nam vaxtabyrði1 11% af ráðstöfunartekjum í fyrra og hefur hlutfallið aukist um ríflega 4 prósentustig frá árinu 2021. Vaxtabyrði allra aldurshópa hefur aukist frá því vextir voru sem lægstir árið 2021 en meðal eldri aldurshópa, 60 ára og eldri er vaxtabyrði lægri í hlutfalli við ráðstöfunartekjur en fyrir tíu árum síðan.
Vísbendingar eru um að heimilin haldi í auknum mæli að sér höndum í útgjöldum. Kortavelta einstaklinga hefur dregist saman þegar horft á veltu innanlands og verulega hefur hægt á vexti kortaveltu erlendis á þessu ári. Sú þróun helst í hendur við minni ferðavilja Íslendinga en tölur um farþegafjölda á Keflavíkurflugvelli benda til þess að íslenskum farþegum hafi fækkað um 10% á fyrstu átta mánuðum ársins borið saman við sama tímabil í fyrra.
Mikill viðsnúningur hefur orðið í væntingum neytenda til efnahags- og atvinnumála sem gjarnan hafa forspárgildi um þróun útgjalda heimila. Væntingavísitala Gallup hefur þannig lækkað nokkuð frá fyrra ári. Þróunin birtist ekki í fækkun fyrirhugaðra stórkaupa heimila að neinu leyti. Lítil breyting hefur orðið á fyrirhuguðum kaupum neytenda á húsnæði, bifreiðum eða ferðalögum.
Vöxtur einkaneyslu verður hægur á þessu ári, 1,1% samkvæmt spá ASÍ. Hægari vöxtur skýrist einkum af þróun kaupmáttar ráðstöfunartekna, sem spáð er að dragist saman um 0,8% í ár, og áframhaldandi aðhaldi peningastefnunnar. Spáin gerir ráð fyrir að einkaneyslan taki við sér á ný á árinu 2027 og aukist þá um 2,2% og 3,0% á árinu 2028, samhliða vaxandi kaupmætti og lækkandi vöxtum.
Samneysla
Vöxtur samneyslu tekur við sér frá því í fyrra (úr 0,7% í 1,1%) og eykst fram til ársins 2027 (1,4%). Samneysla styður þannig við vöxt hagkerfisins á spátímanum, einkum árið 2027. Þá eru hagvaxtarhorfur hvað veikastar, en framlag samneyslu til vaxtar um þriðjungur, sem vegur á móti öðrum þáttum heildareftirspurnar. Forsendan um hóflegan vöxt samneyslunnar byggir á áformum stjórnvalda. Í fjárlagafrumvarpi næsta árs aukast heildarútgjöld málefnasviða um 1,2% að raungildi, en rekstrarframlög aukast meira, um 2,4%, á meðan fjárfestingarframlög og fjármagnstilfærslur dragast saman. Fjármálaáætlun 2027-2031 gerir svo ráð fyrir 1,1-1,5% árlegum raunvexti útgjalda innan stöðugleikareglunnar. Spá ASÍ gengur út frá 1,4% árlegum vexti samneyslu árin 2027 og 2028 og er heldur varfærnari en þjóðhagsspáin sem fjármálaáætlunin byggir á, þar sem gert er ráð fyrir 1,6% vexti 2027 og 1,7% árið 2028.
Óvissan liggur einkum hjá sveitarfélögunum, sem standa undir verulegum hluta opinberrar þjónustu og hafa minna svigrúm til aðhalds en ríkissjóður. Þá kynntu stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins í október aðgerðir í tengslum við endurskoðun forsendna kjarasamninga. Meðal annars: 2,5% þak á hækkanir tiltekinna opinberra gjalda, hærri barnabætur og stuðning við uppbyggingu almennra íbúða. Þensluáhrif þeirra aðgerða eru óveruleg.
Fjárfesting dregst saman
Fjármunamyndun nam 26,9% af vergri landsframleiðslu á árinu 2025. Fjárfestingaumsvif hafa verið mikil í sögulegu samhengi, hvort sem litið er á fjárfestingar atvinnuveganna, íbúðafjárfestingu eða fjárfestingu hins opinbera. Ef litið er til síðustu þriggja áratuga hefur fjárfestingastig einungis mælst hærra á þensluárunum 2005-2007 þegar uppbygging Kárahnjúka og Alcoa átti sér stað samhliða sögulega mikilli íbúðauppbyggingu.
Hægt hefur á almennri atvinnuvegafjárfestingu samhliða hærra vaxtastigi og minni eftirspurn í hagkerfinu. Þróun atvinnuvegafjárfestingar hefur undanfarin misseri litast af mikilli uppbyggingu í landeldi og gagnaverum. Fjárfesting í öðrum greinum hefur hins vegar látið á sér sitja. Af því leiðir talsverð óvissa um atvinnuvegafjárfestingu næstu ára þegar hlutur fjárfestingar hvílir á stórum tímabundnum verkefnum.
Fjármunamyndun eykst um 2,6% á þessu ári, samkvæmt spá ASÍ en dregst saman um 6,7% á því næsta. Samdráttinn má einkum rekja til tveggja þátta. Annars vegar dregst atvinnuvegafjárfesting saman um 8,0% árið 2027 eftir 6,3% vöxt í ár. Hins vegar gerir kólnun vart við sig á íbúðamarkaði og íbúðafjárfesting dregst saman um 9,0%. Fjárfesting hins opinbera vex hins vegar hóflega, um 2,2% á ári frá 2027.
Húsnæðismarkaður
Nokkuð óvenjulegar aðstæður ríkja á húsnæðismarkaði. Augljós merki eru um að hægja muni á íbúðauppbyggingu á næstu árum. Sú þróun er ekki óvænt og skýrist af miklum fjölda óseldra nýrra íbúða og háu vaxtastigi. Samkvæmt talningu HMS frá því í september eru nú um 1.855 fullbúnar óseldar íbúðir á markaðinum borið saman við 379 að meðaltali í talningunum 2021–2024. Engu að síður hefur nokkur velta verið á húsnæðismarkaði þegar horft er til fjölda kaupsamninga og þar af hefur hlutfall fyrstu kaupenda haldist hátt.
Íbúðatalning HMS í september bendir til hraðrar kólnunar á byggingarmarkaði. Íbúðum í byggingu fækkaði um 772 milli mars og september 2026 og fjöldi nýrra framkvæmda dróst saman um rúm 55% á sama tíma. Þá fjölgar framkvæmdum sem standa í stað milli talninga um ríflega 60%. HMS lækkaði spá sína um nýjar íbúðir árið 2027 um nær þriðjung, úr 3.254 í 2.310. Þessi þróun hefur áhrif á spá ASÍ um íbúðafjárfestingu en gert er ráð fyrir að hún dragist saman um 6,7% í ár og 9,0% á næsta ári.
Staða fyrstu kaupenda hefur verið mikið í umræðunni sökum hárra vaxta, hás húsnæðisverðs og þröngra lánþegaskilyrða en hátt hlutfall fyrstu kaupenda er í nokkru ósamræmi við þróun þessara þátta. Fyrstu kaupendur standa fyrir um þriðjungi af veltu á íbúðamarkaðinum. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun metur að fyrstu kaupendur reiði sig í auknum mæli á stuðning ættingja við fjármögnun á íbúðakaupum. Einnig hefur auknu fjármagni verið varið af hálfu hins opinbera til hlutdeildarlána sem gera fyrstu kaupendum kleift að fjármagna kaup með lægri útborgun en við hefðbundin kaup. Um fjórðungur fyrstu kaupa fer nú fram með hlutdeildarlánum á meðan um 80% fyrstu kaupenda treysta á aðstoð ættingja2.
Vaxandi fjöldi íbúða selst nú undir ásettu verði. Húsnæðisverð hefur að mestu staðið í stað að nafnvirði undanfarna tólf mánuði sem leitt hefur til raunlækkunar á húsnæðisverði. Að mati ASÍ verður framhald á þeirri þróun út næsta ár. Gert er ráð fyrir um 2,8% raunlækkun húsnæðis á þessu ári og 2,4% á því næsta áður en húsnæðismarkaður tekur við sér á ný.3
Utanríkisviðskipti
Framlag utanríkisviðskipta til hagvaxtar verður jákvætt á spátímanum. Útflutningur dregst saman um 0,5% í ár en tekur við sér á næstu árum og vex um 1,9% árið 2027 og 2,6% árið 2028. Þar styðja einkum við bati í stóriðju og sjávarútvegi. Framleiðslugeta í áliðnaði færist í fyrra horf eftir skerðingar í lok síðasta árs sem rekja mátti til alvarlegrar bilunar í framleiðslu Norðuráls á Grundartanga. Jafnframt eru horfur um meiri loðnuveiði, en upphafsráðgjöf um aflamark loðnu fyrir fiskveiðiárið 2026/27 var 81% hærri en lokaráðgjöf síðasta fiskveiðiárs.4
Þjónustuútflutningur ber uppi útflutningsvöxtinn árið 2027, meðal annars vegna aukinna umsvifa gagnavera og annarrar tölvu- og upplýsingaþjónustu, á meðan vöruútflutningur stendur nær í stað. Ferðaþjónustan er áfram stór hluti þjónustuútflutnings. Nýjustu tölur benda síður til fjölgunar ferðamanna með hliðsjón af þróun fyrri ára.
Innflutningur dregst saman bæði árin 2026 og 2027, einkum sökum minni vöruinnflutnings í tengslum við stærri uppbyggingarverkefni, sem nú er lokið.5 Þá hefur fækkun ferðalaga Íslendinga áhrif á innflutta þjónustu. Jákvætt framlag utanríkisviðskipta í hagvextinum endurspeglar því bæði bata í útflutningi og veikari innflutning.
Hátt raungengi krónunnar á mælikvarða verðlags hefur áhrif á horfur í utanríkisviðskiptum á spátímabilinu. Raungengið hefur hækkað hratt frá árinu 2023 og samkvæmt spánni heldur sú þróun áfram næstu ár. Viðskiptakjör hafa á móti batnað, en mun minna. Hátt raungengi þrengir þannig að samkeppnisstöðu útflutningsgreina og kann að halda aftur af útflutningsvexti að öðru óbreyttu.
Forsendur fyrir hjöðnun verðbólgu
Bakslag varð í hjöðnun verðbólgunnar í lok síðasta árs. Eftir nokkuð hagfellda þróun frá gerð kjarasamninga í mars 2024 sáust merki um aukinn verðbólguþrýsting þegar leið á árið 2025. Dekkri verðbólguhorfur voru til umfjöllunar í hagspá ASÍ í október 2025 en þar var bent á að innlendur verðbólguþrýstingur, vaxandi húsnæðiskostnaður og opinberar álögur myndu viðhalda verðbólgu yfir markmiði út spátímann.
Sú þróun raungerðist en verðbólga á þessu ári hefur reynst meiri en spár greiningaraðila gerðu ráð fyrir. Rekja má frávikið til nokkurra þátta:
Innlendar verðhækkanir, t.d. á matvöru voru miklar í upphafi árs. Árshækkun matvöru nam 5,8% í mars þar sem hækkanir á kjöti og mjólkurvörum vógu þungt. Nokkuð hefur hægt á verðhækkunum á matvöru eftir því sem liðið hefur á árið og mældist árshækkun á matvöru 4% í september.
Húsnæðiskostnaður vegur enn þungt í verðbólgu, en framlag liðarins hefur þó minnkað. Hækkun á húsnæðiskostnaði mælist engu að síður 6,6% milli ára í september á mælikvarða reiknaðrar húsaleigu og 7,5% á mælikvarða greiddrar leigu.
Hækkanir á gjaldtöku hins opinbera hafa einnig vegið þungt í verðbólguþróun síðustu tólf mánaða, sbr. 32% hækkun opinberrar þjónustu.6 Um 9% hækkun mældist á hitaveitu í desember og rafmagn hækkaði um 5,4% í sama mánuði. Verð á nýjum bílum hækkaði um 13,3% í upphafi árs en hækkunina má rekja til kerfisbreytingar sem gerð var á vörugjöldum bifreiða. Í febrúar tóku gildi hækkanir sveitarfélaga á fasteignagjöldum, sem mældust að jafnaði umfram verðbólgumarkmið. Hækkanir á leikskólagjöldum hafa einnig komið fram í mælingum Hagstofunnar ásamt hækkunum á skráningagjöldum á háskólastigi sem hækkuðu um 15% í ágúst.
Öðru fremur hefur verðlagsþróun ársins litast af alþjóðlegri þróun. Átök í Mið-Austurlöndum hafa haft veruleg og langvarandi áhrif á hrávörumörkuðum. Áhrifin hafa verið víðtækari en eingöngu á olíuafurðir, verð á gasi og málmum hefur einnig farið hækkandi á árinu. Bein áhrif átaka hafa einkum komið fram í hækkun á eldsneytisverði í smásölu. Verð á bensíni hækkaði um fimmtung frá því átökin hófust í lok febrúar til aprílloka.
Aðgerðir stjórnvalda til að hemja verðbólgu tóku gildi í byrjun maí, en þær fólust í því að eldsneyti var tímabundið fært í neðra þrep virðisaukaskatts. Verð á eldsneyti lækkaði í kjölfarið og hélst stöðugt yfir sumartímann en í september hækkaði verð á eldsneyti í smásölu skarpt. Hækkunina mátti bæði rekja til þess að tímabundin lækkun virðisaukaskatts gekk til baka en einnig til mikilla hækkana á innflutningsverði eldsneytis um miðjan mánuðinn. Lægstu verð á bensíni voru um fjórðungi hærri í lok september en lok ágúst.
Óbein áhrif af verðhækkunum á eldsneyti hafa einnig komið fram í mikilli hækkun á flugfargjöldum. Þannig var verð á flugfargjöldum um þriðjungi hærra í september en árið á undan sem skýrir 0,6 prósent af ársverðbólgunni. Hækkunina má einnig rekja til góðrar bókunarstöðu í flugi en umsvif í ferðaþjónustu hafa verið mikil á árinu.
Verðbólguþróun á árinu hefur því að nokkru leyti verið drifin áfram af ytri þáttum, sveiflukenndum liðum og opinberum gjöldum. Á sama tíma og verðbólga mælist 5,9% er það mat Seðlabankans að undirliggjandi verðbólga sé 4,4% en sá mælikvarði undanskilur áhrif óbeinna skatta, eldsneytisverð, sveiflukennda matvöru og opinbera þjónustu.
Spá ASÍ gerir ráð fyrir að verðbólga verði að jafnaði 5,5% á þessu ári og nái hámarki í október og nóvember. Ársverðbólga gæti hækkað nokkuð í nóvember vegna grunnáhrifa en í mælingunni 2025 gætti umtalsverðra útsöluáhrifa, sem gengu til baka í desember. Óvíst er hvort sömu áhrif gæti í ár. Óháð útsöluáhrifum má vænta þess að verðbólga lækki í desember og mælist um og yfir 5,5% í lok árs. Þar hefur áhrif að hækkun hitaveitu í desember 2025 fellur út úr mælingunni.
Í september síðastliðnum komu forsendur kjarasamninga til endurskoðunar. Verðbólga mældist 5,6% í ágúst en forsendur samninganna miðuðu við að verðbólga væri undir 4,7%. Í maí hófst formlega þríhliða samtal milli Alþýðusambandsins, Samtaka atvinnulífsins og ríkisstjórnarinnar með það að markmiði að treysta forsendur kjarasamninga. Þann 6. október tilkynntu Efling, Samiðn og Starfsgreinasamband Íslands að samningum yrði ekki sagt upp á grundvelli niðurstaðna þríhliða samtalsins og samkomulags við SA um styttingu samnings um einn mánuð. Sambærileg niðurstaða náðist hjá VR, LÍV og Fagfélögunum við Samtök Atvinnulífsins þann 8. október og halda því allir kjarasamningar aðildarfélaga gildi sínu út árið 2027.
Til að styðja við markmið samninganna gáfu ASÍ, SA, ríkisstjórnin og Samband íslenskra sveitarfélaga út sameiginlega yfirlýsingu um aðgerðir til að stuðla að hjöðnun verðbólgunnar. Ríki og sveitarfélög skuldbinda sig til að takmarka gjaldahækkanir við 2,5% í upphafi næsta árs. Sömu tilmælum verður beint til fyrirtækja í eigu hins opinbera. Þá kynnti ríkisstjórnin ýmsar aðgerðir til að styrkja stöðu launafólks og styðja við markmið samninganna s.s. aðgerðir til að auka framboð almennra leiguíbúða, umbætur í barnabótakerfinu og aðgerðir gegn félagslegum undirboðum.
Yfirlýsing ríkis og sveitarfélaga við endurskoðun kjarasamninga um að takmarka gjaldahækkanir ásamt boðuðum verðlækkunum og verðfrystingum fyrirtækja skapa forsendur fyrir nokkuð hraðri hjöðnun verðbólgunnar á næsta ári. Samkvæmt spá ASÍ gengur verðbólga niður og verður að jafnaði 4,0% árið 2027 en verður þó komin niður í 3,4% í lok árs 2027. Hjöðnunin hvílir á þremur stoðum: auknum framleiðsluslaka, knappri stöðu á vinnumarkaði og lægri verðbólguvæntingum. Til viðbótar er gengi krónunnar farið að hafa jákvæð áhrif á þróun innflutningsverðs. Raungerist spá ASÍ má vænta þess að stýrivextir lækki á spátímanum og verði 6,70% í lok næsta árs og 5,75% á síðasta ársfjórðungi 2028.
Fráviksgreining: olíuverð hækkar um 20%
Líkt og fjallað er um hér að ofan skapar alþjóðleg þróun verulega óvissu um verðbólguhorfur á næstu misserum. Áhrif af átökunum í Mið-Austurlöndum gætu enn magnast ásamt því að óbein áhrif kunna enn að eiga eftir að miðlast með ólíkum hætti í neysluverð.
Nýjustu upplýsingar um þróun á heimsmarkaði eru frá öðrum og þriðja ársfjórðungi 2026, og grunnspáin gerir ráð fyrir að verðið haldist á því róli og fylgi síðan almennri verðlagsþróun erlendis. Reiknað var fráviksdæmi þar sem olíuverð verður 20% hærra en í grunnspá á fjórða ársfjórðungi 2026. Sú hækkun svarar til heimsmarkaðsverðs á hráolíu í kringum 103 Bandaríkjadali, sem er ekki fjarri lagi nú í október.
Hækkun olíuverðs hefur bein áhrif á verðlag í gegnum innflutningsverð, en heildaráhrif þess á hagkerfið eru flóknari en svo, þar sem óbein áhrif vega á móti. Rýrnun viðskiptakjara hægir á launahækkunum, minni kaupmáttur dregur úr eftirspurn og eykur slaka í hagkerfinu. Það dregur alla jafna úr verðbólguþrýstingi. Metin áhrif á stýrivexti eru lítils háttar hækkun um 0,1 prósentustig.
Áhrifin á verðbólgu eru því á heildina minni en ætla mætti. Innflutningsverð verður 1,6% hærra en í grunnspá árið 2027 og viðskiptakjör rýrna um 1,2%. Verðbólga mælist 4,3% árið 2027 í stað 4,0% og 2,6% árið 2028 í stað 2,5%. Frá og með 2029 eru áhrif fráviksins lítil sem engin. Olíuverðshækkun af þessu tagi lyftir því verðlagi í eitt skipti fremur en að halda verðbólgunni hærri til frambúðar.
Atvinnuleysi ekki meira frá heimsfaraldri
Á vinnumarkaði má sjá skýr merki um kólnun í hagkerfinu. Starfandi einstaklingum hefur ekki fjölgað síðustu tvö ár samkvæmt staðgreiðsluskrám. Þróunin birtist einnig í tölum um búferlaflutninga þar sem verulega hefur hægt á flutningi til landsins.
Þróun í fjölda starfandi hefur verið ólík milli markaða en fækkun starfandi einstaklinga birtist eingöngu á almennum vinnumarkaði þar sem störfum hefur fækkað um 2.200 milli ára. Nýjustu tölur Hagstofunnar um fjölda starfandi samkvæmt staðgreiðsluskrám eru frá júlí en nokkuð hefur verið um tilkynningar um uppsagnir undanfarna mánuði. Sú þróun á því enn eftir að skila sér í hagtölur.
Hlutfall lausra starfa af heildarfjölda starfa hefur einnig lækkað og mælst 1,4% undanfarna ársfjórðunga. Hlutfallið jafngildir 3.000-3.500 lausum störfum samanborið við 5.200-5.800 á fyrri hluta síðasta árs. Hlutfallið hefur ekki mælst lægra frá því fyrir heimsfaraldur en þar vegur þyngst viðsnúningur í mannvirkjagerð þar sem lausum störfum hefur fækkað um helming milli ára.
Samkvæmt vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar mældist árstíðarleiðrétt atvinnuleysi 6,8% í ágúst eða um prósentustigi hærra en á sama tíma 2025. Skráð atvinnuleysi Vinnumálastofnunnar mælist lægra, 3,9% um hálfu prósentustigi hærra en á sama tíma í fyrra. Skráðum atvinnuleitendum hefur því fjölgað um hátt í 1.100 milli ára og eru nú um 8.700. Fjölgun atvinnulausra í mannvirkjagerð, verslun, veitingum og ferðaþjónustu vegur þar þyngst. Fjöldi atvinnuleitenda hefur ekki verið meiri frá 2021 þegar áhrifa heimsfaraldurs gætti á vinnumarkaði.
Munur á tölum Hagstofu og Vinnumálastofnunnar skýrist af ólíkri aðferðafræði og stöðu efnahagsþróunar. Skráning Vinnumálastofnunnar byggir á fjölda þeirra sem skrá sig hjá stofnuninni og fá greiddar atvinnuleysisbætur á meðan tölur Hagstofunnar byggja á spurningakönnun og mæla þá sem eru án atvinnu óháð rétti til atvinnuleysisbóta. Þegar hagkerfið kólnar og nýráðningum fækkar getur skráning Vinnumálastofnunar vanmetið atvinnuleysi þegar atvinnuleitendum sem ekki hafa áunnið sér rétt til atvinnuleysistrygginga fjölgar. Þær breytingar sem gerðar voru á lögum um atvinnuleysistryggingar, með lengri ávinnslu réttinda og styttra bótatímabili geta einnig orðið til þess aukinn munur komi fram í þessum mælikvörðum.
Líkt og um aðra þætti spárinnar ríkir nokkur óvissa um horfur á vinnumarkaði. Kannanir benda til þess að mun fleiri fyrirtæki áformi að fækka starfsfólki en að fjölga og hefur fyrirtækjum sem áforma að fækka starfsfólki fjölgað milli ára. Viðsnúningur í mannaflsfrekum greinum á borð við mannvirkjagerð kann að gera það að verkum að þróun atvinnuleysis verði dekkri en samkvæmt grunnspánni. Um 8% af heildarfjölda starfandi er í mannvirkjagerð og þó fækkun starfa sé farin að mælast í greininni hefur hún verið hófleg. Nýjar tölur HMS benda til þess að nýjum framkvæmdum fækki hratt sem gefur til kynna að umsvif í greininni séu í auknum mæli bundin við verkefni á síðari framvindustigum.
Samkvæmt spá ASÍ helst atvinnuleysi hátt allan spátímann. Atvinnuleysi eykst úr 4,3% í 5,8% á þessu ári sem svarar til um 13.600 manns án vinnu, og starfandi fækkar um tæplega 5.800 manns. Samkvæmt spánni gengur atvinnuleysi hægt niður á spátímanum, verður 5,2% á næsta ári og 4,8% árið 2028.
Neðanmálsgreinar
Vaxtabyrði felur í sér greidd vaxtagjöld og greiddar verðbætur og vanmetur því vaxtabyrði sem felst í reiknuðum verðbótum.↩︎
Sjá https://hms.is/skyrslur/manadarskyrsla-agust-2026↩︎
Tekið er tillit til fjölda óseldra íbúða við gerð spárinnar sem viðbót við virkan húsnæðisstofn. Áhrif þeirra koma fram í lækkun raunverðs um 0,4 prósentustig árið 2027 og 0,2 árið 2028. Áhrifin eru hófleg vegna þess að umframbirgðirnar eru innan við 1% af íbúðastofni landsins og verðið lagar sig hægt að breyttum aðstæðum.↩︎
Sjá https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-09-06-alverksmidjan-a-grundartanga-nanast-komin-i-fullan-rekstur-486168 og https://www.hafogvatn.is/is/moya/news/astand-nytjastofna-sjavar-og-radgjof-fyrir-fiskveidiarid-20262027↩︎
Sjá umfjöllun um fjárfestingar að ofan.↩︎