Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 

Jafnrétti á vinnumarkaði

Krafan um jafnræði launafólks á vinnumarkaði án tillits til kynferðis, uppruna eða annarra þátta sem ekki varða hæfni launafólks eða verðmæti vinnuframlags þess er ein af grundvallarkröfum verkalýðshreyfingarinnar.

Stéttarfélög eru bundin af þessari meginreglu og semja ekki um ólík kjör félagsmanna sinna á grundvelli kynferðis eða annarra þátta sem hafa ekkert með stöðu þeirra á vinnumarkaði að gera.

Þessi grundvallarregla er undirstrikuð sérstaklega í lögum um starfskjör launafólks nr. 55/1980 en þar segir að laun og önnur starfskjör, sem aðildarsamtök vinnumarkaðarins semja um, skulu vera lágmarkskjör óháð kyni [...] fyrir alla launamenn í viðkomandi starfsgrein á svæði því er samningurinn tekur til.

Í lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008 er fjallað mjög ítarlega um stöðu einstaklinga út frá sjónarmiðum um jafnrétti. Í lögunum er ekki aðeins fjallað um jafnrétti launafólks heldur er markmið laganna að koma á og viðhalda jafnrétti og jöfnum tækifærum kvenna og karla og jafna þannig stöðu kynjanna á öllum sviðum samfélagsins.

Í upphafsákvæði laganna segir að allir einstaklingar skuli eiga jafna möguleika á að njóta eigin atorku og þroska hæfileika sína óháð kynferði. Markmiði þessu skal náð með því að: 

   a. gæta jafnréttissjónarmiða og vinna að kynjasamþættingu í stefnumótun og ákvörðunum á öllum sviðum samfélagsins,
   b. vinna að jöfnum áhrifum kvenna og karla í samfélaginu,
   c. bæta sérstaklega stöðu kvenna og auka möguleika þeirra í samfélaginu,
   d. vinna gegn launamisrétti og annarri mismunun á grundvelli kyns á vinnumarkaði,
   e. gera bæði konum og körlum kleift að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf,
   f. efla fræðslu um jafnréttismál,
   g. greina tölfræðiupplýsingar eftir kyni,
   h. efla rannsóknir í kynjafræðum,
   i. vinna gegn kynbundnu ofbeldi og áreitni,
   j. breyta hefðbundnum kynjaímyndum og vinna gegn neikvæðum staðalímyndum um hlutverk kvenna og karla.


  



Laun

er endurgjald starfsmanns í formi peninga sem atvinnurekanda...