Verðlagseftirlit ASÍ hóf starfsemi á grundvelli yfirlýsingar forsætisráðherra í tengslum við endurskoðun kjarasamninga í mars 2001, þar sem því var heitið að fjármagna hana til ársloka 2003. Það liggur hins vegar fyrir nú að starfsemi verðlagseftirlitsins hefur verið tryggð og verður áfram ríkur þáttur í starfsemi skrifstofu ASÍ.
Markmið verðlagseftirlitsins er annars vegar að auka upplýsingastreymi til neytenda og efla þannig neytendavitund og hins vegar að veita fyrirtækjum og stofnunum aðhald. Megináhersla í störfum verðlagseftirlitsins hefur verið lögð á að skoða matvörumarkaðinn en einnig hefur sjónum verið beint að ýmsu öðru sem viðkemur pyngju neytenda.
Verklagsreglur fyrir Verðlagseftirlit ASÍ má sjá hér.
er samkvæmt lögum allt að þriggja mánaða tímabil...