Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
23. september 2003 10:25

Ráðstefna: Atvinna fyrir alla

Atvinna fyrir alla er yfirskrift ráðstefnu sem Alþýðusamband Íslands gengst fyrir um atvinnu- og byggðamál, næstkomandi þriðjudag á Grand Hótel. Undirtitill ráðstefnunnar er góð störf – betri lífskjör.

Ráðstefnan er í senn undirbúningur fyrir ársfund Alþýðusambandsins og upphafið að víðtækri stefnumótunarvinnu ASÍ í atvinnu- og byggðamálum.

Fjölbreyttir fyrirlestrar

Forseti Alþýðusambandsins, Grétar Þorsteinsson, fylgir verkefninu úr hlaði, en frummælendur á ráðstefnunni koma úr ýmsum áttum og koma til með að nálgast viðfangsefnið frá ýmsum hliðum: Stefaan Hermans, frá Atvinnu- og félagsmálaskrifstofu Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins fjallar um samþætta atvinnustefnu ESB. Hann starfar meðal annars við að skilgreina og móta aðgerðaáætlun í tengslum við Lissabonferlið, áætlun sem miðar að því að samþætta í auknum mæli efnahagsmál, atvinnumál og félagsmál. Björn Rúnar Guðmundsson hjá Greiningardeild Landsbanka Íslands fjallar um áhrif stóriðjuframkvæmda og hvað er líklegt að taki við að þeim loknum. Ásgeir Jónsson hjá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands fjallar um byggðamál. Erindi hans ber yfirskriftina: Almennur vandi – sértækar lausnir. Að loknu kaffihlé fjallar Einar Mäntylä hjá ORF Líftækni hf um nýsköpun á Íslandi og heldur því fram að sókn sé eina vörnin. Lilja Mósesdóttir frá Viðskiptaháskólanum á Bifröst varpar fram þeirri spurningu hvort þekking sé uppspretta nýrra starfa og í lok ráðstefnunnar tekur Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ saman í stuttu máli það sem fram hefur komið í framsögum fyrirlesara.

Ráðsefnustjóri er Elín Hirst, fréttamaður.

Ráðstefnan, sem haldin verður á Grand Hótel þriðjudaginn 30. september, hefst klukkan 13:00 og ráðgert er að henni ljúki um 16:30.

Ráðstefnan er öllum opin

Dagskrá

Skýrsla um ráðstefnuna



Til baka


Félagsleg undirboð

Félagsleg undirboð háttsemi erlendra fyrirtækja sem lýsir sér einkum í því að starfsmönnum þeirra eru ekki greidd laun í samræmi við lög og kjarasamninga í gistiríki, þeim er ekki tryggður sá aðbúnaður og öryggi á vinnustað sem lög gera kröfu um og svikist er um að greiða lög- og samningsbundin gjöld af þeim til stofnana samfélagsins, þ.m.t. stéttarfélaga. Með þessu er brotið bæði á hagsmunum viðkomanda starfsmanna og grafið undan stofnunum samfélagsins, tiltrú almennings á þeim og vilja þeirra til að fjármagna þær með sköttum og öðrum gjöldum.