Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
27. janúar 2012 10:43

Verðbólgan 6,5% í janúar – ekki meiri í 20 mánuði

Verðlag hækkaði um 0,28% frá desember og mælist ársverðbólga nú 6,5%. Þetta kemur fram í mælingu Hagstofunnar á vísitölu neysluverðs sem birt var í morgun. Þetta er mesta verðbólga síðan í maí 2010 en þá var hún 7,5%. Hækkanir á ýmsum þjónustugjöldum og álögum hjá ríki og sveitarfélögum skýra að mestu þessa hækkun auk hækkana á bensíni, matvöru, áfengi og tóbaki. Útsölur og lækkun á flugfargjöldum vega hins vegar aðeins upp á móti hækkunum.

Séu verðbreytingar í janúarmánuði skoðaðar nánar má sjá að mest hækkar verð á opinberri þjónustu en í heildina hækkar hún um 5,8% ( vísitöluáhrif 0,45%). Þar af hækkar gjaldskrár orkuveitna fyrir rafmagn og hita um 1,6% (vísitöluáhrif 0,4%) og gjöld fyrir sorphirðu, holræsi og vatn um 12,6% (vísitöluáhrif 0,19%). Þessu til viðbótar má nefna að heilbrigðisþjónusta hækkar um 1,7% ( vísitöluáhrif 0,03%) og félagsleg þjónusta hækkar um ríflega 11,5% ( vísitöluáhrif 0,09%) en undir þann lið heyra t.a.m. leikskólagjöld. Þá hækkar verð á mat- og drykkjarvörum um 0,9% frá fyrra mánuði (vísitöluáhrif 0,14%), mest vegna hækkana á ávöxtum og grænmeti og verð á bensíni og olíu hækkar um 5,2% ( vísitöluáhrif 0,3%).

Vetrarútsölur eru í fullum gangi og vega verðlækkanir vegna þeirra upp á móti. Mest lækkar verð á fötum og skóm á milli mánaða eða um 10,3% (vísitöluáhrif -0,61%). Þá lækkar verð á húsgögnum og heimilisbúanaði um ríflega 2,2% (vísitöluáhrif -0,14%) og flugfargjöld til útlanda lækka um 13,7%( vísitöluáhrif -0,15%), en sá liður sveiflast að jafnaði umtalsvert milli desember og janúar.



Til baka


Fréttalisti


Gengisvísitala

mælir breytingar á verði gjaldmiðils...