asi
Borgarafundur um fátækt
      <description>Miðvikudaginn 8. september verður haldinn borgarafundur um fátækt á Íslandi.  Fundurinn sem fer fram í Ráðhúsi Reykjavíkur hefst kl. 20 en í pallborði verða m.a. ráðherrar, forseti ASÍ og formaður BSRB.  Frummælendur verða talsmenn öryrkja, aldraðra og atvinnuleitenda auk fulltrúar hjálparsamtaka.</description>
Vörukarfan ódýrust í Bónus
      <description>2.678 kr. eða 20% verðmunur reyndist vera á matarkörfunni í lágvöruverslunum þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á höfðuborgarsvæðinu gær, miðvikudaginn 1. september.  Vörukarfan var ódýrust í Bónus þar sem að hún kostaði 13.547 kr og dýrust í Kosti 16.225 kr</description>
Sýningaropnun í Listasafni ASÍ - „Tíminn fer ekki, hann kemur“
      <description>Þessi sýning er tilraun til að tengjast framrás tímans á myndrænan hátt. Efni, rými og hreyfing er sá veruleiki sem við skynjum í dagsins önn. Það er ögrandi viðfangsefni að gera grein fyrir því hvernig tíminn tengist rýminu, hver birtingarform hans geta verið.  Sýningin verður opnuð í Listasafni ASÍ laugardaginn 4. september 2010 kl. 16:00.</description>
Er ríkisstjórninni treystandi?
      <description>Á fundi miðstjórnar ASÍ á fimmtudag kom fram að ríkisstjórnin hefði boðað aðila Stöðuleikasáttmálans á fund til að ræða aðkomu að nýrri samstarfsáætlun.  Þar kom fram af hálfu fulltrúa verkalýðshreyfingarinnar að reynslan af stöðugleikasáttmálanum og framgangi hans væri ekki með þeim hætti að hún gæfi tilefni til bjartsýni varðandi samstarf stjórnvalda og verkalýðshreyfingarinnar. </description>
Miðstjórn ASÍ gagnrýnir vinnubrögð landbúnaðarráðherra
      <description>Jón Bjarnason landbúnaðarráðherra tók nýlega einhliða ákvörðun um að hækka gríðarlega tolla á innfluttum landbúnaðarafurðum.   Miðstjórn ASÍ ræddi þetta mál á fundi sínum í gær og þar kom fram hörð gagnrýni á ákvörðun ráðherrans þar sem hún gangi beint gegn hagsmunum neytenda.  Breytingin dregur úr samkeppni og stuðlar að enn frekari hækkun á landbúnaðarvörum.</description>
Lægsta verðbólga í þrjú ár
      <description>Enn dregur úr verðbólgunni.  Á ársgrundvelli var hún 4,5% í ágúst samkvæmt nýjum tölum sem Hagstofa Íslands birti í morgun. Verðbólga fer nú minnkandi og gera má ráð fyrir áframhaldandi þróun í þá átt á næstu mánuðum. Verðbólgan var síðast um 4,5% haustið 2007.</description>
Umtalsverðar verðhækkanir á skólabókum seinustu 3 árin
      <description>Verð á nýjum skólabókum sem verðlagseftirlit ASÍ kannaði miðvikudaginn 18. ágúst 2010 hefur hækkað um allt að 125% frá sambærilegri könnun í ágúst 2007. Verð skólabókanna hækkaði í flestum tilvikum yfir 25%, en mörg dæmi eru um hækkanir um og yfir 50%. Mest hækkuðu bækurnar í Griffli og Office 1 á milli kannanna. </description>
Mikill munur á álagningu á skiptibókamörkuðum
      <description>Mismunur á innkaups- og útsöluverði skólabóka á skiptibókamörkuðum er allt að 77% samkvæmt verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði í fjórum bókabúðum á höfðaborgarsvæðinu miðvikudaginn 18. ágúst. Skoðaðir voru 9 algengir titlar af kennslubókum fyrir framhaldsskóla.</description>
Mikill verðmunur á skólabókum
      <description>Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á nýjum og notuðum skólabókum fyrir framhaldsskóla í verslunum á höfuðborgarsvæðinu í gær. Farið var í 6 verslanir og skoðað verð á 27 algengum nýjum bókum. Einnig voru skoðaðir 10 titlar á 4 skiptibókamörkuðum.</description>
Stýrivextir lækka um eitt prósentustig
      <description>„Þetta er með stærri skrefum sem Seðlabankinn hefur stigið í vaxtalækkunum og því ber að fagna“, segir Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ aðspurður um stýrivaxtalækkun Seðlabankans úr  8% í 7%.  „ASÍ hefur lengi talað fyrir vaxtalækkun og við viljum sjá bankann ganga enn lengra."  </description>
Forseti ASÍ á fundarferð um landið
      <description>Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ mun næsta mánuðinn gera víðreist um landið og hitta að máli stjórnir allra 53 aðildarfélaga Alþýðusambandsins. Ferðin hefst með fundi í Stykkishólmi í dag og lýkur í Reykjavík þann 15. september.
Samkomulag um vinnustaðaskírteini tekur gildi
      <description>Þann 15. ágúst sl. tók gildi samkomulag ASÍ og SA um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum. Samkomulagið byggir á lögum nr. 42/2010 um sama efni sem veita heildarsamtökum vinnumarkaðarins heimild til að semja um hvaða starfsgreinar falli undir gildissvið laganna hverju sinni.  </description>
Vegna verkfalls slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna
      <description>Að gefnu tilefni tekur Alþýðusamband Íslands fram að verkfallsrétturinn er grundvallarréttur hvers stéttarfélags og óheimilt er lögum samkvæmt að brjóta eða komast hjá löglega boðuðum vinnustöðvunum.</description>
Endurgreiðsla vegna séreignarsparnaðar sem skerti atvinnuleysisbætur
      <description>Þeir sem eru 60 ára eða eldri og telja að greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði til þeirra hafi verið skertar vegna greiðslna úr séreignarlífeyrissjóði á tímabilinu 1. mars 2009 til dagsins í dag, geta átt rétt á endurgreiðslu úr Atvinnuleysistryggingasjóði sem nemur fjárhæð skerðingarinnar.</description>
Vörukarfan hefu lækkað lítillega í verði frá því í febrúar
      <description>Vörukarfa ASÍ hefur á hækkað um 2-7% í helstu verslunarkeðjum frá því í maí í fyrra. Verð körfunnar hefur þó lækkað nokkuð í flestum verslunarkeðjum frá því hún náði toppi sínum í febrúar síðastliðnum eftir nær samfeldar verðhækkanir síðan um mitt ár 2008.  </description>